Fasteignaleitin
Skráð 20. maí 2026

Hafnarstræti 45

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
216.1 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
33.000.000 kr.
Fermetraverð
152.707 kr./m2
Brunabótamat
116.150.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
21469012
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Heimkoma er ný tegund fasteignaþjónustu á Íslandi þar sem nokkrar fjölskyldur deila einni eða fleiri gæða frístundaeignum í skipulögðu samfélagi.
 
Í fyrsta verkefni félagsins er um þriggja húsa samfélag að ræða þar sem hver fjölskylda á 1/12 hluta og á því 12 vikur yfir árið í sínum húsum (4 vikur í hverju húsi).

Eignirnar, sem eru  heilsárseignir, eru í þremur mismunandi landshlutum, sem tryggir fjölbreytta notkun allt árið.
 Hér má sjá allar upplýsingar um heimkomu

Kostir sameignar eru meðal annars. Minni fjárfesting. Lægri rekstrarkostnaður. Betri nýting á fasteignum og innviðum.
Fjölbreytileiki  í ljósi þriggja staðsetninga. Engar áhyggjur né ábyrgð á viðhaldi eða rekstri, Heimkoma sér um allt.

 
Um fjárfestingu í fasteignum er að ræða, kaupandi er þinglýstur eigandi hluta af þremur fasteignum.
 
Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á þremur hæðum rétt við miðbæ Akureyrar með góðu útsýni yfir Pollinn og í Vaðlaheiði.
Fallegt útisvæði með heitum og köldum potti. 


Eignin er skráð samtals 216,1 fm., og skiptist jarðhæð í forstofur, baðherbergi, tvö herbergi og góðar geymslur.
Miðhæð skiptist í forstofu á palli milli mið og neðri hæðar, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, baðherbergi og fatahengi. 
Efsta hæðin skiptist í sjónvarpshol, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús. 

 

Forstofa með flísum á gólfi, þaðan er farið upp á miðhæðina um teppalagðan stiga og niður á jarðhæð.
Svefnherbergin eru tvö bæði með parket á gólfum. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengt wc, lítill skápur við vask, sturta og opnalegur gluggi.
Hol með flísum á gólfi, þar er einnig annar inngangur, rúmgott rými. 
Geymsla með flísum á gólfi og önnur útgrafin geymsla er inn af geymslunni og einnig gott geymslurými undir stiga.

Miðhæð: Hol, rými með fatahengi, baðherbergi, borðstofa, stofa og eldhús.
Hol er með parket á gólfi og inn af því er fatahengi, opið fatahengi ásamt efri skápum og skúffueiningu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, lítill skápur við vask, upphengt salerni og sturta með gler vængjum. Gönguhurð er út frá baðherbergi út á veröndina einnig er útgengi út frá stofu/holi út á veröndina, en þar er frábært útisvæði og er bæði heitur og kaldur pottur á neðri palli sunnan við húsið.
Borðstofa/Stofa í opnu rými með eldúsi með parket á gólfi, gott útsýni. Fallegur arin setur mikin svip á rýmið.
Eldhús er með flísum á gólfi, gott skápa- og vinnupláss. Þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél, vönduð tæki og spanhelluborð.
Einstaklega vönduð innrétting með flísum á veggjum sem og við arin. Fallegt útsýni er yfir Pollinn og yfir í Vaðlaheiði úr eldhúsi og borðstofu.

Efrihæð: Sjónvarpshol/stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi.
Veggur við stigauppgöngu er panelklæddur og málaður í fallegum lit og setur skemmtilegan svip á rýmið. Parket er á stiga
Sjónvarpshol með parket á gólfi, fallegt útsýni til austurs. 
Svefnherbergin eru þrjú, tvö þeirra eru notuð sem svefnherbergi í dag og eitt sem fataherbergi en auðvelt er að breyta því aftur í svefnherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting við vask ásamt góðum skáp, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og opnanlegur gluggi.
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting með vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þaðan er gengið út á rúmgóðar svalir með snúrum.
Af holi efri hæðar er lúga með fellistiga upp á geymsluloft.

Annað:
-Þak var endurnýjað 2017
-Húsið hefur verið mikið endurnýjað að innan á virkilega smekklagan og notaendavænan hátt
-Virkilega skemmtileg verönd sem er öll endurnýjuð, heitur og kaldur pottur á neðri verönd
-Góður geymsluskúr á lóð ca. 6-7 fm. sem er óeinangraður
-Hiti er í stétt fyrir framan hús, í bílaplani sunnan við það og á verönd 2. hæðar
-Örstutt frá miðbæ Akureyrar sem býður upp á úrval veitingastaða, verslunar og annarar þjónustu

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (68)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reykjadalur 3A
Skoða eignina Reykjadalur 3A
Reykjadalur 3A
271 Mosfellsbær
454.6 m2
Einbýlishús
1148
627 þ.kr./m2
285.000.000 kr.
Skoða eignina Hvammstangabraut 35
Bílskúr
Hvammstangabraut 35
530 Hvammstangi
242.2 m2
Einbýlishús
424
281 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata - aukaíbúð 50
Hverfisgata - aukaíbúð 50
220 Hafnarfjörður
233 m2
Einbýlishús
725
622 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin