Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2026

Reykjastræti 7 (214)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
101 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
127.900.000 kr.
Fermetraverð
1.266.337 kr./m2
Brunabótamat
74.940.000 kr.
Miklaborg
http://www.miklaborg.is
Byggt 2019
2. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2369180
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

**EIGANDI SKOÐAR SKIPTI BÆÐI Á MINNI OG STÆRRI EIGN**

Móeiður Svala löggiltur fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Reykjastræti 7 íbúð 214 - Stórglæsileg og afar vönduð 101 fm 2ja herbergja horníbúð á 2. hæð við Austurhöfn í hjarta miðborgarinnar. Íbúðin nýtur fallegs útsýnis til miðbæjarins og að Hörpu. Sérmerkt bílastæði í læstri bílgeymslu og 11,9 fm sérgeymsla fylgja eigninni.

Íbúðin er björt, með aukna lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum í tvær áttir og mikilli innbyggðri lýsingu. Vandað eikarparket á gólfum og allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr amerískri hnotu frá ítalska framleiðandanum Gili Creations.


NÁNARI UPLÝSINGAR: BÖDDI LGF S:8216300 EÐA boddi@miklabor.is eða moa@miklaborg.is



Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalögð og björt með gólfsíðum glugga til norðurs og vönduðum fataskápum úr hnotu.

Stofa: Parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum í tvær áttir og útgengi á skjólsælar austursvalir með viðarklæddu gólfi þar sem sólin skín á milli bygginga eftir 17 á sumrin.

Eldhús: Rúmgott og opið við stofu, parketlagt, með sérsmíðaðri hnotuinnréttingu, marmara á borðum og vegg á milli skápa. Innbyggður ísskápur af stærri týpunni með frysti, innbyggð uppþvottavél og innbyggður vaskur í marmaraborði. Stór eyja með marmara á borðum og hliðum, innfelldu vönduðu helluborði með innbyggðum háfi, áföst borðaðstaða og innbyggðir rafmagnstenglar. Stór tækjaskápur sér á vegg með marmaraklæðningu á borði og vegg.

Baðherbergi: Stórt með flísalögðu gólfi og flísalögðum og marmaraklæddum veggjum. Stór walk-in sturta með sturtugleri, innbyggðum vönduðum tækjum í vegg, bæði handsturtu og innbyggðum sturtuhaus í lofti. Baðkar með flísa- og marmaralögn í kring, vönduð innrétting úr hnotu með marmara á borðum og innbyggðum vaski, handklæðaofn og stórir speglaskápar. Þvottaaðstaða með stæðum fyrir þvottavél og þurrkara í góðri innréttingu.

Svefnherbergi: Stórt og rúmgott, parketlagt með fallegri lýsingu.

Fataherbergi: Inn af svefnherbergi um rennihurð, parketlagt með sérsmíðuðum hnotuinnréttingum og stórum spegli á vegg

Stofan og eldhúsið sameinast í opið rými sem gerir íbúðina einstaklega bjarta og rúmgóða.


Snjallt heimiliskerfi gerir kleift að stýra lýsingu, hitastigi og gluggatjöldum með einum hnappi.


Sérmerkt bílastæði í bílakjallara er merkt 10-B-80 (214).
Sérgeymsla, í kjallara er 11,9 fermetrar að stærð. 


Austurhöfn er ein metnaðarfyllsta íbúðabygging landsins, þar sem áhersla er lögð á gæði, hönnun og frágang í hæsta flokki — einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja sameina lúxus, staðsetningu og þægindi í hjarta Reykjavíkur með einstakan aðgang að frábærum veitingastöðum, verslunum og menningarlífi borgarinnar.


NÁNARI UPLÝSINGAR: BÖDDI LGF S:8216300 EÐA boddi@miklabor.is eða moa@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/07/2025128.250.000 kr.125.000.000 kr.101 m21.237.623 kr.Já
26/06/2024119.150.000 kr.125.000.000 kr.101 m21.237.623 kr.Já
23/03/202263.550.000 kr.105.000.000 kr.101 m21.039.603 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur forsíða jpg.jpg
Skoða eignina Unnardalur 9E
Unnardalur 9E
260 Reykjanesbær
88,4 m2
Fjölbýlishús
413
678 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:28. okt. kl 18:00-18:30
2.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
80,9 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 26.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Háteigsvegur 12
Bílastæði
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Háteigsvegur 12
Háteigsvegur 12
105 Reykjavík
156,5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
614
927 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 31 (503)
Hringhamar 31 (503)
221 Hafnarfjörður
95,6 m2
Fjölbýlishús
312
815 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin