Fasteignaleitin
Skráð 21. des. 2023
Deila eign
Deila

Maríugata 37

Nýbygging • RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
239.4 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
176.000.000 kr.
Fermetraverð
735.171 kr./m2
Fasteignamat
22.300.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Sigurður Tyrfingsson
Sigurður Tyrfingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1582
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
F2504605
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Svalir
Verönd
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Maríugata 37, endahús. Skilast fullbúið að utan sem innan án gólfefna nema á blautrýmun sem eru flísalögð. Frágengin lóð að framanverðu, hellulagt bílaplan stígar með hitalögn, lóð bakatil og til hliðar skilast grófjöfnuð. Innréttingar frá Parka eða sambærilegt. Verð fullbúið án lóðarfrángangs er 170 millj. 
Um er að ræða samtals 238,5 fm mjög vel staðsett neðan götu raðhús á tveim hæðum með frábæru óskertu útsýni að Heiðmörk ( ekkert byggt fyrir neðan hús ) Inngangur og aðkoma að húsi er af efri hæð. Einnig er sér inngangur í neðri hæð, möguleiki á aukaíbúð. 
Gluggar eru ál/tré. Hitalagnir eru í gólfi. Tvívirkt loftræsting inn og út kerfi er innsteypt í loftaplötu, stokkar og niðurtekning lofta óþörf. Stjórnstöð fylgir ekki. Stigahandrið inni, milli hæða fylgir ekki. 


HÚSIÐ: Við hönnun hússins er lögð áhersla á að íbúar húsins njóti útsýnis og sólar, meðal annars með stórum gluggum, veröndum og svölum, þá er lögð áhersla á að sjónrænt myndi húsið heildasvip og að samræming sé í efnis og litavali. Húsið er skráð samtals 238,5 fermetrar, íbúð 210,1 fm og bílskúr 28,4 fm. 
Innra skipulag efri hæðar: Anddyri, gestasnyrting, eldhús, borðstofa og stofa, útgengt úr stofu á svalir, fjölskyldu/sjónvarpsherbergi. Bílskúr.
Innra skipulag neðri hæðar: Anddyri. Fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
https://teikningar.gardabaer.is/Mar%C3%ADugata/GB11-5598.pdf
https://teikningar.gardabaer.is/Mar%C3%ADugata/GB11-5599.pdf

Arkitekt hússins er Helgi Hjálmarsson - Teiknistofan Óðinstorgi. Verkhönnun er Verkfræðistofan Víðsjá. 
Frágangur:
Burðarvirki: Sökklar, plötur, útveggir og berandi veggir hússins eru steinsteyptir og jarnbentir. Lagnir: Rör í rör lagnakerfi.Gólfhitalögn: 
Gluggar/hurðir og gler: Gluggar eru Ál/tré að innan og litað ál að utan, glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Bílskúrshurðin er ál, einangruð.
Þak: Þakvirkið er ýmis úr timbursperrum eða steypt. Lóð: Grófjöfnuð lóð.

HVERFIÐ: Húsin standa við Maríugötu í Urriðahverfi í Garðabæ. Skammt frá er Urriðaskóli sem er grunn- og leiksskóli hverfissins. Í næsta nágrenni er golfvöllur, Urriðarvöllur, útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarvatn og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s. verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvikjum. Urriðaholt er umlukið fjölbreyttum opnum náttúrusvæðum og er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun skv. vottunarkerfi BREEAM Communities. Hverfið byggir á hugsjón um að íbúðarbyggð eigi að hámarka lífsgæði fólks sem þar býr í sátt við náttúruna og umhverfið allt. Hverfið nýtur allra þjónustu sem Garðabær hefur uppá að bjóða. Nánar má lesa um hverfið á vefnum http://urridaholt.is/


Upplýsingar um eignina veita:
Sigurður Tyrfingsson löggiltur fasteignasali og Húsasmíðameistari s. 898-3708 eða sigurdur@gardatorg.is
Unnur Ýr Jónsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala s. 8660507  eða  unnur@gardatorg.is
Garðatorg eignamiðlun er staðsett á Lyngási 11 í Garðabæ. 

Skilalýsing:  
Húsið skilast fullbúið að utan, frágengin lóð, hellulagt bílaplan og stígar að framanvörðu með hitalögnum, lóð bakatil og til hliðar skilast grógjöfnuð. Að innan skilast húsið fullbúið án gólfefna. Innréttingar frá Parka eða sambærilegt, tæki og búnaður að viðurkenndri gerð. Baðherbergi er flísalagt, golf og veggir ásamt innréttingu og tækjum. Að utan verður húsið múrhúðað og einangrað að innan. Málað í ljósum lit. Gluggar eru ál/tré. Stærð húsa er samkvæmt skráningatöflu hönnuða ( á ábyrð hönnuða ) Það athugist að 3D myndir eru til að gefa vísbendingar af útliti og skipulagi hússins, sama á við um lóðauppdrátt. Stigahandrið inni, milli hæða fylgir ekki. 
Burðarvirki: Söklar, plötur, útveggir og berandi veggir hússins eru steinsteyptir og jarnbentir. 
Útveggir: Veggir eru einangraðir að innan og múrhúðaðir. Steyptir milliveggir verða slípaðir fyrir sparsl. 
Gluggar/hurðir og gler: Gluggar eru Ál/tré að innan og litað ál að utan, glerjaðir með þreföldu-gleri, gler í stofugluggum eru með tvöföldu þykku gleri. Bílskúrshurðin er ál, einangruð.  
Þak: Þakvirkið er steinsteypt og jarnbent og að hluta til úr timbursperrum, heilklætt, þakpappi eða PVC dúk. Þakið er einangrað í timburhlutanum, steypti hlutin er einangraður og fullfrágengin. 
Milliveggir: Léttir milliveggir hlaðnir úr létt steini.
Loft: Timburloft  eru einangruð með rakasperru með rafmagnsgrind. Steypt loft einangruð að utanverðu.  
Hitakerfi: Gólfhitalagnir ísteyptar í bílskúr, að öðru leiti eru gólfhitalagnir lagðar ofan á steypta plötu og Anhydrit flotílögn lögð yfir. Stofinntök komin og hitakerfi fullbúið. Varmaskiptir.   
Raflagnakerfi: Flull frágengið.  
Loftræsting: Loftræstirör eru innsteypt samkvæmt teikningu. Vélræst loftræsting með inn og útsogi. Stjórnstöð fylgir ekki. 
Svalir:  Fljótandi glerhandrið.  
Lóð: skilast fullbúin án skjólveggja.

Byggingin skal að öðru leyti uppfylla öll ákvæði byggingareglugerðar. Sérstaklega er bent á mannvirkjalög í þessu sambandi.  
Húsið skal að öðru leyti byggt og því skilað í samræmi við lög og reglur varðandi nýbyggingar.    
Allir aðkeyptir byggingarhlutar sem notaðir verða í byggingunni munu vera af viðurkenndri gerð  
Aðilar eru sammála um að eiga gott samstarf við frágang og endanlegar útfærslur.  Allur frágangur og útfærslur verði í samræmi við teikningar og hönnun hússins.  
Afhending: Verkáætlun. Stefnt er að framkvæmdum ljúki eigi síðar en maí 2024.

Dragist afhending vegna orsaka sem seljandi ræður ekki við t.d. v. verkfalla eða veðurs, hamfara eða annarra slíkra atriða mun seljandi ekki greiða sérstakar bætur vegna þess til kaupanda, heldur munu afhendingargreiðslur skv. kaupsamningi dragast sem seinkunn nemur. 

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt 0,3% af endanlegu, væntanlegu brunabótamati. Seljandi hefur að fullu greitt gatnagerðargjöld svo og byggingaleyfisgjöld. Önnur gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa eru stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% Stimpilgjald af veðskuldabréfi -. þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1582
28.4 m2
Fasteignanúmer
2401096
Númer hæðar
1
Númer eignar
02
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Húsmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
3 - Risin bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kinnargata 10
Bílskúr
Skoða eignina Kinnargata 10
Kinnargata 10
210 Garðabær
201.4 m2
Parhús
513
819 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 18
Bílskúr
Skoða eignina Mosagata 18
Mosagata 18
210 Garðabær
227 m2
Parhús
524
744 þ.kr./m2
168.900.000 kr.
Skoða eignina Súlunes 14
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Súlunes 14
Súlunes 14
210 Garðabær
214 m2
Fjölbýlishús
614
743 þ.kr./m2
158.900.000 kr.
Skoða eignina Árakur 30
Bílskúr
Skoða eignina Árakur 30
Árakur 30
210 Garðabær
231.9 m2
Raðhús
524
746 þ.kr./m2
172.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache