FRÓN Fasteignamiðlun kynnir í einkasölu mjög reisulegt og vel skipulagt bjálkahús, ásamt stórum sérstæðum bílskúr, á einstökum útsýnisstað á Fáskrúðsfirði. Heildarflatamál hússins er 238,50 fm, þar af er bílskúr 80,3 fm skv. skráningu.
Steinsteyptur grunnur er undir húsinu og fyrsta gólf er með viðargólfborðum. Húsið er ofarlega í þorpinu og þaðan er mikð útsýni í allar áttir. Húsið stendur við enda götu í efstu götunni í hverfinu. Þrefalt gler er í öllu húsinu.
Á neðri hæð er eldhús og stofa í alrými með útgengi út á stóra verönd, baðherbergi með sturtuaðstöðu, stórt svefnherbergi með útgengi út á stóra verönd, annað minna herbergi, forstofa og stórt þvottahús með útgengi út í garð.
Efri hæð skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi og þau eru öll með handlaug, þar af er eitt herbergi með útgengi út á svalir. Rúmgott baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Bílskúrinn er 80,3 fm og er með heitu og köldu vatni. Hægt er að nýta bílskúrinn undir gistirými eða útbúa lítið „einbýlishús“.
Leitast var við að innrétta húsnæðið í hlýlegum og heimilislegum sveitastíl.
Stórt plan er fyrir framan hús með nægum bílastæðum. Stór viðhaldslítill garður, eignin er umkringd trjám sem mynda skemmtilega umgjörð kringum húsið ásamt stórkostlegu útsýni til allra átta.
Verslanir og veitingastaðir eru í 10 mínútna göngufjarlægð og fallegar gönguleiðis liggja í kring um húsið. Reyðarfjörður er í 20 mínútna akstursfjarlægð. Hægt er að semja um að húsgögn og búnaður fylgi eigninni.
Bókið skoðun og fáið allar frekari upplýsingar hjá Finnboga Kristjánssyni, löggiltum fasteignasala í síma 897-1212 og á netfanginu finnbogi@fron.is
Nánari lýsing. Fyrsta hæð:
Forstofa með viðarparketi. Skápar í ljósum lit. Forstofan opnast við stofu, gengt í eldhús og inn í borðstofu.
Gengið er úr forstofunni inn í snyrtingu með sturtu. Þar er opnanlegur gluggi. Hvítur vaskur og viðargólf.
Gengið er inn í herbergjagang með viðargólfborðum. Þar er „box“ herbergi og innar er hjónaherbergi.
Úr holi er gengið í borðstofu með vesturgluggum. Þar inni er kamína.
Út af borðstofunni, er gengið út í sólskála. Þaðan er gengið út á stóra á verönd sem snýr í vestur og liggur meðfram húsinu sunnan megin og í austur. Þar er mikið útsýni yfir fjörðinn og fjöllin.
Eldhúsið er notalegt með viðargólfborðum, hvít innrétting með viðarborðplötu. Uppþvottavél er í innréttingu. Barskenkur við enda innréttingar. Gluggar þar snúa í austur og suður. Gott útsýni þaðan.
Gengið er úr holi inn í þvottahús. Þar er steingólf. Tengt er fyrir þvottavél og þurrkara. Tæki geta fylgt með.
Tengigrind fyrir vatn og rafmagn inn í þvottahús. Tvennir gluggar opnanlegir.
Rafhitakútur er staðsettur í þvottahúsi. Hiti er í gólfi á fyrstu hæð, en vatnsofnar uppi á annari hæð.
Gengið er út úr þvottahúsi, út á plan og yfir í bílskúr.
Efri hæð:
Inn af holi er gengið upp á loft upp viðarstiga, með tveimur beygjum og þar upp á pall.
Þar er risloft og frekar hátt til lofts.
Herbergi snýr út að sjó í suður. Þar er gott pláss, vaskur og góður gluggi sem er opnanlegur. Gott útsýni yfir fjörðinn.
Minna herbergi, með glugga. Þar er vaskur og hægt að hafa tvö rúm.
Stórt herbergi með kvisti. Þar má tengja kamínu við reykháf. Gengið út úr herberginu á suður inndregnar svalir með skemmtilegu útsýni yfir fjörðinn og fjallasýn. Vaskur og hengi.
Hol með kvisti. Þar er loftplata yfir sem nýtt er sem geymsla.
Inn af holi er fataherbergi og þar inn af er snyrting og sturta. Tengja má þetta rými við stóra herbergið.
Bílskúr: Sérinngangur að sunnanverðu, en inn í hann er stór innkeyrsluhurð af vestanverðu plani.
Steingólf er á allri fyrstu hæð. Bæði heitt og kalt vatn er til staðar í skúrnum.
Nánari lýsing bílskúrs:
Komið er inn í forstofu. Gengið inn í tækjaherbergi, upp á loft og inn í aðalrými bílskúrs.
Í tækjaherbergi er aðalrafmagnstafla, hitakútur, vaskur og klósett. Hitastýring á vegg fyrir gólfhita.
Efra loft er með viðarborð á gólfi. Risherbergi inn af því.
Til er lager af gólflistum, panel og fl. fyrir húsið, sem geymt er í bílskúrnum og fylgir með.
Aðstaða til að vinna að handverki. Þar er t.d. góð smíðaaðstaða.
Lóðin við húsið af ofanverðu er malarplan. Þar undir eru frárennslis- og neysluvatnslagnir.
Lóðin að neðan er með töluverðum trjágróðri. Lækur rennur meðfram húsinu og út í sjó.
Eldiviðageymsla er í garðinum.