Borg fasteignasala kynnir rúmgóða 4ra herbergja íbúð við Jöklafold 12. Eignin er 114,6 fm að stærð og er á neðri hæð í tvíbýlishúsi við botnlangagötu. Íbúðin er með sérinngangi og rúmgóðri verönd framan við innganginn. Á veröndinni er nýlegur sérgeymsluskúr með rafmagni.Nánari lýsing:Forstofa: Harðparket á gólfi með fataskáp.
Eldhús: Með nýlegri innréttingu, bakaraofn með pláss fyrir ísskáp og uppþvottavél
Borðstofa: Rúmgóð og björt samtengd við eldhús.
Stofa: Rúmgóð.
Baðherbergi: Flísalagt, með baðkari, sturtu og nýlegri innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með fataherbergi.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Geymslurými: auka geymslu rými á móti baðherbergi með innréttingu
Þvottahús: Inn af eldhúsi, með nýlegri innréttingu.
Rými inn af stofu og eldhúsi: Skráð sem geymsla, með útgengi í garð. Opnanlegt fag er í hurðinni.
Gólfefni og endurbætur: Nýlegt parket er á öllum gólfum að undanskildum baðherbergi og þvottahúsi. Allar innihurðir eru nýlegar, sem og innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Íbúðin er nýmáluð.
Lóð og útisvæði: Lóðin framan við húsið er snyrtileg. Þar er rúmgóð sérverönd með nýlegum geymsluskúr með rafmagni.
Björt og rúmgóð íbúð sem hefur verið mikið endurnýjuð að hluta, á góðum stað í Grafarvogi.
Nánari upplýsingara veitir:Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
s. 868 2222 / victor@fastborg.is
Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali
s:788-9030 / 519-5500 ulfar@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.