Fasteignaleitin
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 12. nóv. 2026

Ölduslóð 14

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
173.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
111.900.000 kr.
Fermetraverð
646.447 kr./m2
Brunabótamat
95.700.000 kr.
Byggt 1955
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20808401
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

173,1 fm neðri hæð í tvíbýli með bílskúr við Ölduslóð 14 í Hafnarfirði. 
Eignin skiptist þannig að aðalhæðin er 107,0 fm, kjallari sem tilheyrir íbúðinni er 35,0 fm og bílskúrinn 31,1 fm, samtals 173,1 fm skv. HMS.

Íbúðin: 
Sérinngangur. Forstofa. Gangur innaf. Eldhús með grárri innréttingu, ofn, helluborð m/viftu yfir, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Björt stofa og borðstofa. Baðherbergi með sturtu, veggsalerni. Fjögur svefnherbergi og sér þvottahús er innan íbúðar.
Kjallari: Útgengt er í kjallarann í dag. Mögulegt er að opna frá íbúð og niður í kjallara. Þar eru m.a. geymsla og hobbyrými skv teikningur sem tilheyrir íbúðinni.
Bílskúr: Útgengt er í bílskúrinn. Hann er með hita, rafmagni og vatni.
Lóðin: Sameiginleg lóð.
 
Framkvæmdir undanfarin ár skv. seljanda (Frá 2019):
2019 - Rafmagn endurnýjað, ný tafla fyrir allt húsið og sér tafla fyrir miðhæð. Nýjir rofar og tenglar settir upp og dregið í
2019 - Vatnslagnir og blöndunartæki endurnýjað
2019 - Skólplagnir endurnýjaðar útfyrir grunn og út í götu
2019 - Eldhúsinnrétting endurnýjuð
2020 - Baðherbergi endurnýjað, vatnslagnir og skôlp. Flísalagt og ný baðinnrétting walk in sturta
2020 - Ný gólfefni á efri og neðri hæð. Parket og parketlistar á herbergi, stofu og gang. Flísar í anddyri og þvottahúsi
2020 - Þvottahús byggt upp í forstofu sem áður var köld geymsla, einangrað og vatnslagnir settar í rýmið
2021 - Nýjar innihurðar og karmar á 1 hæð
2021 - Steypt planið að framan 
2021- Kjallari; Sett upp rennihurð fyrir hitarými, skólplagnir og vatnslagnir settar niður og tengt. Gólfefni endurnýjað. 
2024 - Útidyrahurð endurnýjuð
2023 - Dren lagt við húsið
 2026 - Útihurð í bílskúr endurnýjuð

Frábær staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkabraut 13b (507)
Heitur pottur
Bakkabraut 13b (507)
200 Kópavogur
180,8 m2
Fjölbýlishús
1604 þ.kr./m2
290.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 11 (504)
Bakkabraut 11 (504)
200 Kópavogur
179,9 m2
Fjölbýlishús
1445 þ.kr./m2
260.000.000 kr.
Skoða eignina Skeiðarvogur 141
Opið hús:16. nóv. kl 17:00-17:30
Skeiðarvogur 141
104 Reykjavík
163,6 m2
Raðhús
524
762 þ.kr./m2
124.600.000 kr.
Skoða eignina Lyngmelur 2
Á einni hæð
Skoða eignina Lyngmelur 2
Lyngmelur 2
301 Akranes
184,4 m2
Raðhús
524
512 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin