Smárahlíð 18a - Skemmtileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Glerárhverfi - stærð 76,6 m²
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.
Forstofa er með dúk á gólfi og opnu hengi. Eldhús, vel umgengin dökk plastlögð innrétting með dúk á milli skápa og á gólfi. Úr borðkrók er hurð til suðurs út á lóð. Stofa er með dúk á gólfi og gluggum til tveggja átta. Svefnherbergin eru tvö, bæði með dúk á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum um 12 og 7 m². Baðherbergi er með dúk á gólfi, hvítri innréttingu, wc og baðkari með strututækjum. Þvottahús er inn af eldhúsinu, þar er dúkur á gólfi og hluta veggja og vaskur.
Sér geymsla er í kjallaranum með lökkuðu gólfi og hillum.
Annað - Eignin er að stærstum hluta í upprunalegu ástandi. - Nýlegur dyrasími - Búið er að endurnýja opnanleg fög. - Húsið var málað að utan árið 2020.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Útfellingar eru í stofu og svefnherbergjum á norður vegg, ekki hefur borðið á neinu síðan húsið var múrviðgert og málað að utan.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.