Virkilega fallegt og vel skipulagt 6 herbergja einbýlishús með bílskúr, stórum sólpalli og heitum potti við Eikardal 10 í Reykjanesbæ.
Húsið stendur á 962 fm lóð og er sólpallurinn um 100 fm með skjólveggjum.
Eignin er alls 259 fm og skiptist þannig að íbúðarhluti er 210,2 fm og bílskúr 48,8 fm skv. fasteignaskrá.
Nánari lýsing:Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi
Gestasnyrting með upphengdu salerni.
Eldhús og stofa í björtu alrými með aukinni lofthæð, útgengt á góðan sólpall með skjólveggjum.
Eldhús með fallegri dökkgrárri innréttingu, innfelldur ísskápur og uppþvottavel. Tvöfaldur ofn í vinnuhæð og góður tækjaskápur.
Eldunareyja með spanhelluborði.
Gott
sjónvarpshol er við herbergjagang.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum.
Barnaherbergin eru fjögur og skápur í einu.
Baðherbergi með sturtu og baðkari, góð innrétting og opnanlegur gluggi. Útgengt er á pall úr baðherberginu.
Þvottahús er innaf forstofugangi með miklu geymsluplássi og útgengt út á pall.
Stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur, innfelldur frystir og upphengd vinnuborð sem hægt er að leggja niður.
Bílskúr er 46 fm og er því afar rúmgóður, með aukinni lofthæð og geymslu. Rafmagnsopnari á innkeyrsluhurð sem er 4*2,5 m.
Geymsluloft er fyrir ofan forstofu og snyrtingu.
Hitalagnir eru í bílaplani sem eftir er að tengja.
Gólfefni íbúðarhluta er vínylparket og flísar á votrými.
* Aukin lofthæð
* Gólfhiti
* Lýsingu í lofti stofu og eldhúsi er hægt að stýra með appi.
* Fimm svefnherbergi
* Stór sólpallur
* Gott bílaplan
* Stór lóð
Stutt er í fjölbreytta þjónustu á borð við leik- og grunnskóla, bakarí og sundlaug.
Einnig er örstutt í fallega náttúru með gönguleiðum meðfram sjónum og fjölmörgum útivistarmöguleikum í nærumhverfinu.Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is