Fasteignaleitin
Opið hús:08. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 4. okt. 2026

Básbryggja 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
124.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
681.380 kr./m2
Fasteignamat
85.500.000 kr.
Brunabótamat
68.700.000 kr.
Byggt 1999
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2243621
Landnúmer
180371
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því húsið var byggt
Raflagnir
Frá því húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því húsið var byggt
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Viðgert og endurnýjað að mestu 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir:  Gullfalleg, töluvert endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með tvennum svölum og græn svæði beggja megin við húsið. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu sem opin er að hluta inn í eldhús, sjónvarpsrými – nú nýtt sem borðstofa, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er sérgeymsla. Næg bílastæði fyrir utan húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Nánari lýsing: Básbryggja 15 er 6 íbúða, þriggja hæða fjölbýli byggt árið 1999 í Bryggjuhverfinu. Húsið stendur við skiptingu götunnar og því er engin aukaumferð við húsið og næg bílastæði. Sameiginleg skjólgóð lóð er fyrir aftan húsið og framan við það er fótboltavöllur og mjög gott leiksvæði fyrir börn með leiktækjum og ærslabelg. Stutt er í leikskóla og grunnskóla í Hamrahverfi Grafarvogs. 3 mín gangur er á strætóstöð. Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina.
Forstofa: Með fataskáp og flísum á gólfi.
Sjónvarpsrými: Nú nýtt sem borðstofa staðsett í miðju íbúðarinnar.
Stofa: Mjög rúmgóð og rúmar auðveldlega einnig borðstofu. Útgengi út á rúmgóðar, skjólgóðar suðvestursvalir.
Eldhús: Með vandaðri U-laga innréttingu, nýlegum eldhústækjum og góðu skápaplássi. Auka innrétting hönnuð fyrir tvöfaldan ísskáp. Barborð. Gluggi.
Svefnherbergin: Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni á vinstri hönd þegar komið er inn. Hjónaherbergið er með fataskáp yfir heilan vegg og útgengi á rúmgóðar austursvalir. Hin herbergin tvö eru bæði rúmgóð og eru með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa. Innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús:  Ágætlega rúmgott og nýtist einnig sem aukageymsla inn í íbúð.
Sameign: Í sameign fylgir sérgeymsla, vagna- og hjólageymsla sem og sérdekkjageymsla.
Bryggjuhverfið er vel skipulagt hverfi með smábátahöfn, það er skjólsælt og býður upp á fallegar göngu- og hjólaleiðir til nærliggjandi svæða á borð við Geirsnef, Elliðaárdal og Grafarvog. Stutt er á stofnleiðir og skammt að sækja alla helstu þjónustu upp á Höfða s.s. heilsugæslu, matvöruverslun, mathöll o.fl.
Virkilega falleg 4ra herbergja íbúð í litlu fjölbýli á góðum stað í Bryggjuhverfinu. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/08/201224.300.000 kr.25.200.000 kr.124.6 m2202.247 kr.Nei
16/04/200927.310.000 kr.38.000.000 kr.124.6 m2304.975 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Frostafold 23
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Frostafold 23
Frostafold 23
112 Reykjavík
113.1 m2
Fjölbýlishús
512
689 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Fannafold 70
Efsta hæð
Skoða eignina Fannafold 70
Fannafold 70
112 Reykjavík
101.1 m2
Fjölbýlishús
413
707 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 - 102
Bílastæði
Opið hús:04. okt. kl 17:30-18:00
Hafnarbraut 10 - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
423
912 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 9
Bílastæði
Opið hús:07. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Dugguvogur 9
Dugguvogur 9
104 Reykjavík
126.3 m2
Fjölbýlishús
514
751 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin