Fasteignaleitin
Skráð 25. júlí 2023
Deila eign
Deila

Leirárskógur HEITAVATNSRÉTTINDI

Jörð/LóðVesturland/Akranes-301
Verð
Tilboð
Fasteignamat
23.424.000 kr.
Brunabótamat
4.420.000 kr.
Byggt 1950
Fasteignanúmer
F2105818
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð

ÁSBYRGI FASTEIGNASALA, SUÐURLANDSBRAUT 54, RVK, S. 568-2444, asbyrgi@asbyrgi.is, KYNNIR: VORUM AÐ FÁ Í EINKASÖLU LÖGBÝLIÐ LEIRÁRSKÓG SEM  218 HA EIGNARLAND, MEÐ MIKLUM JARÐHITA,  SKÓGI, OG GÓÐU BEITILANDI. MIKLIR MÖGULEIKAR Á NÝTINGU JARÐHITA OG AÐ SKIPULEGGJA LANDI FYRIR FRÍSTUNDABYGGÐ EÐA HÓTEL. 


Staðsetning, landlýsing, landgæði.
  Jörðinni Leirárskógi var skipt úr jörðinni Leirá. 
Landið er 217,6 ha að flatarmáli, staðsett í Hvalfjarðarsveit (áður Leirársveit) undir suð-vestur fjallshlíðum Skarðsheiðar. Jörðinni Leirárskógi var skipt úr jörðinni Leirá
 
Land jarðarinnar liggur til suðurs og vesturs frá Skarðsheiði. Landinu má lýsa þannig að um 78 ha. er hæðótt kjarrlendi og innan þess er um 5 ha. barrskógur ræktaður frá 1960 mikill og fallegur lundur. Um 90 ha. er framræst land mjög grasgefið. Hinir hlutar landsins eru mólendi og melar. Landið afmarkast af fallegri bergvatnsá -  Leirá í vestri og er hluti árinnar eign Leirárskógar ehf. Í Leirá er lax- og silungsveiði. 
Útsýni er glæsilegt.  Til vesturs má sjá yfir Melasveit og til hafs allt til Snæfellsjökuls Til suðurs sér yfir byggðir Leirársveitar  allt til Akrafjalls og Akraness og til hafs. Í suðaustri  er útsýni til fjalla beggja vegna við Hvalfjörð og til Botnssúlna og til austurs inn Svínadal. Í norðri rís Skarðheiðin með tindunum, Skessuhorni, Skarðshyrnu og Heiðarhorni, og næst Leirárskógi er tindurinn Snókur sem er með stuðlabergs gígtappa. Mjög fallegt göngusvæði er í Leirárskógi og nágrenni, inn Leirárdal eða á tinda Skarðsheiðar.  Landið hentar vel fyrir sumarbústaðabyggð, hefðbundna íbúðabyggð, útivist, ferðaþjónustu sem og annað. 
Þjónusta. Nálægð við höfuðborgina. Atvinnumöguleikar.
Landið er í Hvalfjarðarsveit, skammt norðan Hvalfjarðarí 49 km fjarlægð (um 40 mínutna akstur) frá Reykjavík Ekki er yfir fjallveg að fara á þessari leið.  Til Akraness eru 18 km  og 27 km til Borgarness. Lega landsins er þannig að þrátt fyrir að þjóðvegur nr. 1 liggi nokkuð nærri þá heyrist ekki í umferð. Landið hentar vel, hvort heldur til til íbúðabyggðar eða sumarhúsabyggðar. Golfvellir eru á Akranesi, Borgarnesi og í Svínadal. Góðar sundlaugar eru á Hlöðum, á Akranesi og í Borgarnesi. Stórt og hratt vaxandi atvinnusvæði, Grundartangi (Álver, járnblendi, komandi kísilver, Faxaflóahafnir o.fl.) er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Leirárskógi. 
Jarðhiti/ kalt vatn
Jörðinni fylgja jarðhitaréttindi og kaldavatnsréttindi jarðarinnar Leirárskógar svo og jarðarinnar Leirár. Í landi Leirárskógar ehf. eru nú 4 jarðhitaborholur með hita frá um 60° til um 120° hitu vatni. Jarðhita ná hagnýta með margvíslegum hætti hvort heldur til hitunar íbúðarhúsa eða sumarhúsa eða til annara nota. Núverandi borholur í landi Leirárskógar gefa af sér heitt vatn, samkvæmt mælingum sérfræðinga, sem áætlað er að nægi til að hita upp allt að 800 íbúðir. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ingileifur Einarsson, löggiltur fasteignasali, gsm 894-1448, ingileifur@asbyrgi.is 

 
 
 
 

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Ingileifur Einarsson
Ingileifur Einarsson
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ljósheimar 1
Skoða eignina Ljósheimar 1
Ljósheimar 1
301 Akranes
Jörð/Lóð
900.000 kr.
Skoða eignina Lækur 0
Skoða eignina Lækur 0
Lækur 0
301 Akranes
Jörð/Lóð
9.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 19
Skoða eignina Asparskógar 19
Asparskógar 19
301 Akranes
Jörð/Lóð
1.800.000 kr.
Skoða eignina Hrísabrekka 20
Skoða eignina Hrísabrekka 20
Hrísabrekka 20
301 Akranes
Jörð/Lóð
1.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache