BERG fasteignasala kynnir: Eignarlóð í Grafningi. Stutt frá Soginu.
Hvammsvegur 7, sumarhúsalóð sem er eignarlóð til sölu í landi Stóra-Háls í Grafningi. Lóðin er 5600 fm. eða rúmur hálfur hektari. Gróin og við fallega tjörn með fuglalífi. Stutt niður á fast, ca. 1 m. sjávarmöl þar undir. Gott byggingarland. Mjög fallegt umhverfi og auðvelt að rækta og stunda skógrækt. Búið að leggja góðan veg að lóðarmörkum. Komið er rafmagn að lóðamörkum og einnig kalt vatn.
Nánari upplýsingar hjá Berg fasteignasölu í síma 588-5530 eða eftirfarandi starfsmönnum:
Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali - sími 897-0047 - netfang: petur@berg.is
Heimasíða Berg fasteignasölu: www.berg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.400,- m/vsk