Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýli að Kirkjubraut 7 á Akranesi. Húsið er steinsteypt og staðsett í miðbæ Akraness. Því er göngufæri í alla helstu þjónustu og verslanir.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 71,3 m2.Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:Forstofa er inn af sér inngangi af vesturgafli húss. Innan íbúðar er komið inn á fallegt flísalagt gólf. Við tekur parket sem flæðir um flest rými íbúðar og er án þröskulda.
Herbergi I er með gluggum á tvo vegu.
Herbergi II er nær eldhúsi og er minna en hið fyrra.
Stofa er milli svefnherbergja. Gluggi til suðausturs.
Baðherbergi er með sturtuklefa, hvítri innréttingu undir handlaug og speglaskáp. Upphengt salerni. Opnanlegt fag. Ljósar gólfflísar.
Eldhús er með hvítri innréttingu á á tveimur veggjum. Svört borðplata. Efri skápar eru hvítir háglans.
Geymsla er undir stiga í sameign.
Þvottahús er í sameign á sömu hæð og íbúðin.
Parket ar í öllum rýmum nema baðherbergi.
Ath. eigandi hefur ekki búið í eigninni og er íbúðin nú í útleigu og laus til afhendingar (3ja mánaða uppsagnarfrestur á leigusamningi).
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-