Hraunhamar fasteignasala kynnir: Dverghella 3, Hafnarfirði. Nýtt glæsilegt hús, atvinnuhúsnæði. Stór sameiginleg afgirt lóð með lokuðu hliði. Frábær staðsetning til framtíðar. Stór lóð fyrir framan hvert bil !
Húsið er límtréshús klætt með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan
Traustir og góðir verktakar KB verk ehf. (sömu aðilar byggðu samskonar hús m.a. Borgahellu 1,3 og 5 og Dofrahellu 6 sem seldust öll á stuttum tíma) Engin vsk kvöð. (skráð sem geymsla) Mikil lofthæð ca. 6,5 metrar við útvegg og 7,5 metrar við mæni samkv. skilalýsingu.
Um er að ræða geymslu- og atvinnuhúsnæði að Dverghellu 3. Húsið skiptist í 19 eignar-/leigurými.
Bil 112 er skráð 70,0 fm. EN AUÐVELDLEGA HÆGT AÐ BÆTA VIÐ 35 FM MILLILOFTI AÐ AUKI !Inntaksrými er í vestur enda hússins og er sameiginlegt. Byggingin er bæði á einni og tveimur hæðum. Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð. 2.hæð byggð upp úr berandi stálbitum (I-bitar) og klædd með 12cm þykkum límtrés einingum.
Einingarnar 19 eru að mismunandi stærðum. Allar einingar eru með ræstivask. Einingar hafa aðgang að sameiginlegum sorpgám á lóð. Lóðin verður malbikuð með nægum bílastæðum. Húsnæðið skilast fullfrágengið með lokaúttekt, byggingarstig 7.
Skv. skilalýsingu:
Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu. Burðargrind hússins er úr límtré. Mikil lofthæð ca. 6,5m við útvegg og ca. 7,5m við mæni.
Útveggir: Burðargrind hússins klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7021. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Hurðir: Innkeyrsluhurðir frá Hörmann með opnara, litur RAL 7021 með samlitum álgluggum. Stærð hurða 325x360. Húsið skilast með vönduðum ál og/eða ál-timbur gluggum og hurðum. Litur RAL 7021.
Þak: Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7021.
Innveggir og loft: Innveggir eru gerðir úr OSB krossvið/spónaplötum í innralagi klætt með gifsi, með steinullareinangrun á milli. Tilbúnir til spörslunar og málningu.
Gólf: Gólf 1.hæðar eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð. Gólf 2.hæðar (þær einingar sem við á) eru byggð upp úr berandi stálbitum (I-bitar) og klædd með 12cm þykkum límtrés einingum.
Stigi (í tveggja hæða einingum). Stigi á milli hæða er byggður upp með límtrés þrepum
Hitun: Hitun húsnæðisins verður með gólfhita.
Raflögn: Rafmagn (utanáliggjandi) fullfrágengið skv. teikningum og skilast með góðum iðnaðarlömpum í lofti og útikastara fyrir ofan iðnaðarhurð.
Skilast með þriggja fasa tengil og 16A tengil undir töflu.
Lóð: Lóð verður fullfrágengin með góðu malbikuðu bílaplani, sjá afstöðumynd.
Brunavarnir: Brunavarnir eru samkvæmt reglugerð.
Salerni: Frárennslislagnir verða tilstaðar fyrir möguleika á salerni
Ræsting: Ræstivaskur er í hverri einingu skv. Teikningu
Kaupandi borgar 0,3% skipulagsgjald þegar það verður lagt á við brunabótamat.Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Hlynur Halldórsson lgf. s. 698-2603 hlynur@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.