Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Rúmgóða efri hæð með útsýni, alls 178,5 fermetra við Sogaveg 101 ásamt bílskúr. Eignin skiptist í anddyri með sérinngangi, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslu, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Eldhús hefur verið fært í stofu og í dag er svefnherbergi þar sem eldhúsið var. Inn á svefnherbergisgangi er búið að stækka baðherbergið. Eignin er laus við kaupsamning.
Stutt er í alla þjónustu, skóla, samgöngur, verslun og íþróttir.
Nánari lýsing:
Neðri forstofa: Með flísum á gólfi. Þaðan er gengið upp bjartan og rúmgóðan stiga með parketi.
Efri forstofa/hol: Með sprautulökkuðum klæðaskápum og gólfhita.
Gestasnyrting: Hefur verið endurnýjuð. Flísalagt í gólf og veggi, hvítur sprautulakkaður skápur við vask og upphengt salerni.
Svefnherbergu I Rúmgott, bjart með gólfhita. Gluggar til suðausturs.
Svefnherbergi II Er rúmgott og bjart. Gluggar til norðvesturs. Herbergið var áður tvö svefnherbergi, auðvelt að breyta því aftur.
Hjónaherbergi III er rúmgott með skápum og útsýni til norðurs að Esjunni, Úlfarsfelli og víðar. Nýr gluggi er í bílskúr og fylgir með.
Baðherbergi: Er flísalagt með tvöfaldri sturtu, gólfhita og glugga til norðausturs. Endurnýjað 2022-2023. Nýr gluggi er í bílskúr og fylgir með.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, góð innrétting með skápum, vinnuborð með vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi til norðausturs. Nýr gluggi er í bílskúr og fylgir með.
Geymsla/búr: Er staðsett fyrir innan þvottahús. Flísar á gólfi, hillur og gluggi til norðausturs. Nýr gluggi er í bílskúr og fylgir með.
Stofa: Er rúmgóð og björt og stórum gluggum.
Borðstofa: Er rúmgóð og björt. Borðstofa er opin inní eldhús og stofu með stóra glugga til suðurs.
Eldhús: með sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. Vönduð eldhústæki eru í eldhúsi, s.s. Miele stál bakaraofn og DeDietrich spansuðu helluborð, gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél. Auk þess er stál háfur, fallegar flísar á vegg og stór gluggi til suðurs. Eldhús er opið við borðstofu og er með gólfhita.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs.
Bílskúr: 28,8 fermetrar með steyptu gólfi. Heitt og kalt vatn, rafmagn og upphitaður. Hægt að leggja tveimur bílum fyrir framan skúr. Góð aðkoma að bílskúr frá Rauðagerði.
Gengið er niður í sameign frá forstofu þar sem inntak, mælar ofl er. Þaðan er stutt að ganga í bílskúrinn.
Um er að ræða fjölskylduvæna hæð á góðum stað í Reykjavík - Stutt í alla þjónustu
Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali