Fasteignaleitin
Skráð 7. maí 2025

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
69.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
1.085.837 kr./m2
Fasteignamat
68.700.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
3. hæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2532649
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B3 - Fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 311.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

S8-Sameign í boði – fjármagnaðu aðeins 75% af kaupverði: 56.925.000

  • 75% verð: 56.925.000 kr.
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (5.692.500 kr.)
  • 0% leigugreiðslu í allt að 36 mánuði ef þú nýtir kauprétt innan þann tíma.
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari upplýsingar veita:

Aron M. Smárason lfs. í síma 5832001, eða á aron@heimaf.is

Falleg og vönduð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 69,9 fm þar af 5,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu.

Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými; eldhús og stofa/borðstofa með útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0042. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: Hlíðarhorn

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Hlíðarhorn fasteignasala er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg (216)
Hleðslustöð
móa_vefur (3).jpg
Skoða eignina Laugaborg (216)
Laugaborg (216)
105 Reykjavík
83.5 m2
Fjölbýlishús
312
1006 þ.kr./m2
84.000.000 kr.
Skoða eignina Stigahlíð 26
Efsta hæð
Opið hús:25. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Stigahlíð 26
Stigahlíð 26
105 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 407
Opið hús:23. ágúst kl 13:00-13:30
móa_vefur (1).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 407
101 Reykjavík
78.4 m2
Fjölbýlishús
312
1115 þ.kr./m2
87.400.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 43 (Vesturvin 1) íb 305
Opið hús:23. ágúst kl 13:00-13:30
móa_vefur (21).jpg
Mýrargata 43 (Vesturvin 1) íb 305
101 Reykjavík
72 m2
Fjölbýlishús
211
1088 þ.kr./m2
78.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin