LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Dalbarð 15, Eskifirði
ATH. Sólpallur framan við húsið hefur verið stækkaður síðan myndirnar voru teknar og settur nýr skjólveggur.
Um er að ræða stórt og þægilegt endaraðhús innst í botnlangagötu..
Húsið er mjög rúmgott og í því eru 5 góð svefnherbergi, 1 á neðri hæð og 4 á efri hæð.
2 baðherbergi eru í húsinu, annað á neðri hæð og er það með sturtu og hitt á efri hæð og með baðkari.
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu og tækjum.
Við hlið eldhússins er góð stofa.
Þvottahúsið er með dyrum út í bakgarðinn.
Baðherbergi er inn úr þvottahúsinu.
Bílskúrinn er með geymslu inn úr.
Sólpallur með heitum potti er ofan við húsið (umsemjanlegt hvort potturinn fylgir með við sölu)
og annar sólpallur með góðum skjólveggjum er neðan við húsið.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.