Fasteignaleitin
Opið hús:30. maí kl 15:00-15:30
Skráð 15. feb. 2023

Dimmuhvarf 7b

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
243.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
192.900.000 kr.
Fermetraverð
792.197 kr./m2
Fasteignamat
141.600.000 kr.
Brunabótamat
113.400.000 kr.
Mynd af Þóra Þrastardóttir
Þóra Þrastardóttir
Fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2363994
Landnúmer
218197
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Endurbætt 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG kynnir:  Glæsilegt parhús á tveimur hæðum við Dimmuhvarf í Kópavogi.  Fallegt hús með frábæru útsýni á eftirsóttum stað við Elliðavatn í Kópavogi. Eignin er skráð skv. FMR 243,5 m², þar af er innangengur bílskúr 29,5 m².  Til viðbótar er 15 m² upphituð geymsla á lóð.
Í húsinu eru samkvæmt teikningu fjögur góð svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Á efri hæð eru glæsilegar stofur, eldhús og hjónaherbergi með baðherbergi inn af, en herbergi á jarðhæð ásamt alrými með lítilli eldhúsinnréttingu og baðherbergi hefur verið stúkað af sem íbúðarrými með inngangi frá forstofu.  Suð-vestur garður er glæsilegur með stórum palli þar sem er heitur og kaldur pottur og fallegur hleðsluveggur er í enda lóðar og til austurs er timbur skjólveggur milli húsa, til vesturs er lóðin tyrfð og með fallegum hlöðnum gróðurbeðum og timbur skjólvegg. Á hæðinni eru norðursvalir og 30 m² skjólgóðar suðursvalir. 
Glæsileg og vönduð eign á rólegum stað í námunda við fallega náttúru. 
Upplýsingar veitir  Þóra Þrastardóttir, lgf. í síma 822-2225 eða thora@fstorg.is 


Sækja söluyfirlit hér

Nánari lýsing; Neðri hæð hússins skiptist samkvæmt teikningu í bílskúr, baðherbergi og þrjú svefnherbergi, þar af er eitt herbergjanna með sér baðherbergi, lítilli eldhúsinnréttingu og útgengi í garð. Gengið er inn í rúmgóða flísalagða forstofuBílskúrinn er innangengur á vinstri hönd með Epoxy á gólfi, miklu skápaplássi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.  Allir skápar í bílskúr fylgja. Svefnherbergin þrjú á jarðhæðinni, tvö baðherbergi og alrými með lítill eldhúsinnréttingu með útgengi í garðinn hafa verið lokuð af og nýtt sem séríbúðarrými en einfalt er að færa aftur í fyrra horf og er seljandi tilbúin til að framkvæma það ef þess er óskað, vandað parket er á gólfum. 

Efri hæðin skiptist í einstaklega bjarta og glæsileg stofu og borðstofu, rúmgott eldhús með stórum gluggum til norðurs þar sem glæsilegt útsýnið nýtur sín og hjónasvítu. Eldhúsinnréttingin er frá IKEA, dökkur viður í bland við hvítt með Arpa harðplast borðplötu.  Eldunareyjan er með Samsung helluborði með innbyggðri viftu.  Hægt er að sitja við enda eyjunnar en auk þess er vinnuplássið virkilega gott og skápapláss mikið.  Tveir Samsung ofnar eru í innréttingunni einn venjulegur og hinn sambyggður ofn ásamt örbylguofni.  Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Borðstofan og stofan deila alrýminu með eldhúsinu og er þetta rými einstaklega rúmgott og bjart með mikilli lofthæð.  Hjónaherbergið er með sér baðherbergi og góðum skápum. Útgengi er úr stofu á tvennar svalir, annars vegar í norður með gullfallegu útsýni og hins vegar um 30 fm svalir sem snúa í suður og þar er hægt að njóta sólar frá morgni til kvölds.  Báðar svalirnar eru með gólfklæðningu.

Aðalgólfefni hússins er harðparket frá Harðviðarvali.  Flísar á anddyri og baðherbergjum eru frá Vídd. Gólfhiti er í öllu húsinu fyrir utan bílskúr.  Á lóðinni við bílastæðin er upphitaður 15 fm garðkofi/geymsla með rafmagni og nettengingu. Húsið er viðhaldsklétt, álklætt með klæðningu frá Áltaki. Góð aðkoma er að húsinu og rúmgóð bílastæði með snjóbræðslukerfi. Frábær staðsetning og mikil kyrrð er umhverfis eignina.

​​​​Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða  1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/05/2023141.600.000 kr.153.000.000 kr.243.5 m2628.336 kr.
22/10/201852.250.000 kr.69.800.000 kr.243.5 m2286.652 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2017
29.5 m2
Fasteignanúmer
2363994
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.000.000 kr.

Myndir (71)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörðukór 1
Bílastæði
Skoða eignina Hörðukór 1
Hörðukór 1
203 Kópavogur
124 m2
Fjölbýlishús
413
698 þ.kr./m2
86.500.000 kr.
Skoða eignina Brekkugerði 17
Skoða eignina Brekkugerði 17
Brekkugerði 17
108 Reykjavík
331 m2
Einbýlishús
825
601 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Skoða eignina Álfkonuhvarf 23
Bílastæði
Skoða eignina Álfkonuhvarf 23
Álfkonuhvarf 23
203 Kópavogur
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hörðukór 3
Bílastæði
Skoða eignina Hörðukór 3
Hörðukór 3
203 Kópavogur
125.8 m2
Fjölbýlishús
413
762 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin