Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Þorraholt 17 í Hnoðraholti, 210 Garðabæ. Glæsileg 100 fermetra, 3ja herbergja íbúð við Þorraholt 17 í litlu fjölbýli. Eignin er með bílastæði í bílakjallara, sérgeymslu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, 2 svefnherbergjum. stofu, eldhúsi og svölum til suðurs. Stæðið er merkt:
B17SÝNUM DAGLEGA - BETRI STOFANNÁNAR UM VERKEFNIÐ:
www.thorraholtid.is Þorraholt 17 íbúð 109: Glæsileg 100,3, fermetra íbúð á 1. hæð með svölum til suðurs og merktu bílastæði í bílakjallara. Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er
17,1 fermetrar að stærð. Afhending er í mars-apríl 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.
ÞG verk er að byggja glæsilegar íbúðir við Þorraholt 17 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsum og fylgja bílastæði í bílakjallara íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. Sameiginlegur bílakjallari er með
Þorraholti 19.Húsið stendur á útsýnisstað til suðurs og vesturs.
Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.
Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.
Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.
ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum.
Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum.
Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. Þar sem enn er verið að klára þinglýsingu á eignaskiptasamningi þá eru fastanúmer ekki rétt og verða leiðrétt fyrir kaupsamning um eignina.
Eignin afhendist skv skilalýsingu.
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali hjá Betri Stofunni.