Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: *** STRIKIÐ NR.10 - 60 ÁRA OG ELDRI - GARÐABÆR ***
Um er að ræða 111,1m2 (þar af er geymsla 6,5m2) íbúð á jarðhæð á þessum eftirsótta stað í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Íbúðin er númer 104 en hún er með sérafnotareit, bílastæði í bílastæðahúsi og sérgeymslu. Sameiginlegur inngangur er inn í lyftuhúsið. Forstofa, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, borðstofa, stofa, verönd, sérstæði í bílakjallara með bílahleðslu. Parket og flísar á gólfi. Vel rekið húsfélag. Jónshús - Félags- og íþróttastarf eldri borgara í Garðabæ er steinsnar frá eða til húsa í Strikinu númer 6.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS
Nánari lýsing eignar.
Inngangur. Snyrtilegur og vel viðhaldinn.
Forstofa. Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi I. Rúmgott svefnhebergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi II. Parket á gólfi og með fataskáp. Rúmgott svefnherbergi.
Eldhús. Opið og vel útbúið eldhús með bakaraofni í vinnuhæð, helluborði, viftu, ísskáp og uppþvottavél. Öll tæki mega fylgja með sé þess óskað. Gott skápapláss er inn í eldhúsinnréttingunni.
Stofa. Rúmgóð og björt stofa með útgengi á sérafnotareit.
Verönd. Góð timburverönd.
Borðstofa. Björt og rúmgóð borðstofa. Parket á gólfi.
Baðherbergi. Gott baðherbergi - flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, góð viðarinnrétting með speglaskáp. Walk in sturta og handklæðaofn.
Bílastæði. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara með tengingu fyrir rafmagnsbílahleðslu.
Þvottahús. Þvottahús með flísum á gólfi og með geymslu inn af.
Geymsla. Sérgeymsla sem telur 6,5m2 fylgir með íbúðinni.
Sameign. Hjólageymsla.
Rúmgóð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð á þessum eftirsótta stað í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Íbúðinni fylgir sérgeymsla og sérbílastæði í kjallara. Stutt er í
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra