Prima fasteignasala, Haukur Páll Ægisson lgf og Björgvin Þór Rúnarsson lgf kynna í einkasölu eignina Álfaskeið 98, íbúð 403, 220 Hafnarfirði.
Álfaskeið 98 er steinsteypt hús frá árinu 1966. Bílskúrar voru byggðir 1990. Um ræðir þriggja herbergja (2 svefnherbergi) íbúð á efstu hæð með bílskúr. Samkvæmt HMS er eignin skráð 125,7m2. Þar af er bílskúr 23,7m2 og geymsla á jarðhæð 11,5m2.
Eignin skiptist eftirfarandi.
Forstofa, stofa, eldhús, þvottahús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Sérgeymsla er á jarðhæð og sérstæður bílskúr á sameiginlegri lóð.
Nánari lýsing.Forstofa með fataskáp.
Eldhús með fallegri innréttingu, upphengdum skápum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og bakarofnum í vinnuhæð.
Þvottahús er upphengdum skápum og vaski, einnig er tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Opnanlegt gluggafag er í þvottahúsinu.
Stofa er björt með útgengi út á svalir
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, vaski og upphengdum spegli, sturtu og handklæðaofni.
Í sameign á jarðhæð er rúmgóð
geymsla sem fylgir íbúðinni.
Óeinangraður
bílskúr með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl (leigu hleðslustöð).
Sérstaklega undanþegið fylgifé:[tilgreina hluti sem ekki eiga að fylgja, s.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]
Nánari upplýsingar veita:Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.