Fasteignaleitin
Skráð 23. apríl 2026

Borgartún 24

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
57.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
1.039.931 kr./m2
Fasteignamat
60.750.000 kr.
Brunabótamat
38.500.000 kr.
Mynd af Arinbjörn Marinósson
Arinbjörn Marinósson
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignir í sölu
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2518349
Landnúmer
102800
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
uppprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðaustur svalir
Upphitun
Ofna kynding
Inngangur
Sérinngangur
LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2. herbergja 60,8 fm íbúð á 3. hæð í nýju fjölbýli við Borgartún 24. Íbúðin er með sérinngangi og er laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svefnherbergi, eldhús og stofu með 4,5 fm svölum sem snúa til suðausturs ásamt 11,2 fm geymslu á jarðhæð. Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni.

 
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is
 
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og parket á gólfi
Eldhús vönduð innrétting frá Nobilia, eldhústæki frá Simens
Stofa með parket á gólfi, útgengt á svalir
Hjónaherbergi með fataskáp og parket á gólfi
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta með upphengdu salerni og handklæðaofni.
Geymsla sem er 11,2 fm að stærð með mikilli lofthæð.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 
Túnin eru hið upphaflega úthverfi Reykjavíkurborgar. Margt hefur breyst og eru þau nánast hluti af miðbænum í dag. Í hverfinu er Waldorfskólinn Sóltún en Laugarnesskóli er ekki langt undan og er hverfisskólinn fyrir börnin sem búa á svæðinu. Nálægðin við Borgartúnið gerir það að verkum að margvísleg þjónusta er innan seilingar hvort sem fólk þarf að fara með skyrtur í hreinsun eða kaupa sér innanhúsmálningu. Í Borgartúni er sérstaklega gert ráð fyrir hjólreiðafólki og þaðan er hægt að hjóla í hendingskasti, beygja framhjá Höfða og bruna Sæbrautina. Bríetartúnið er nútímaleg byggð og göngubrú tengir svæðið við Teigahverfið í Laugardal. Það er því auðvelt aðgengi að útivistarsvæðum og Túnin vel tengd við aðra borgarhluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7d (117)
Eirhöfði íb 117.jpg
Eirhöfði 7d (117)
110 Reykjavík
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7d (219)
Eirhöfði íb 219.jpg
Eirhöfði 7d (219)
110 Reykjavík
110.3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (101)
Eirhðfi 7 íb 101.jpg
Eirhöfði 7a (101)
110 Reykjavík
136.8 m2
Fjölbýlishús
423
979 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkubyggð 69
Bókið skoðun: María  sími 8201780
Skoða eignina Brekkubyggð 69
Brekkubyggð 69
210 Garðabær
78.1 m2
Fjölbýlishús
312
933 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin