Fasteignaleitin
Skráð 7. jan. 2025
Deila eign
Deila

Skólastígur 32

HæðVesturland/Stykkishólmur-340
207.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.500.000 kr.
Fermetraverð
262.904 kr./m2
Fasteignamat
56.050.000 kr.
Brunabótamat
87.450.000 kr.
Mynd af Helen Sigurðardóttir
Helen Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2116202
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar / endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Þarfnast endurnýjunar
Frárennslislagnir
endurnýjaðar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler, endurnýjað að hluta / upprunalegt
Þak
þakdúkur hefur fengið reglulega skoðun og er í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Til eru tvær tillögur að breytingum innanhúss, m.a. til að auka aðgengi að pallinum og garðinum, fjölga herbergjum, gera bílskúr innangengan og bæta við baðherbergi.
Gallar
Halli er í gólfi fyrir framan forstofu þar sem íbúð á neðrihæð endar. Dæld er í einu svefnherbergi og sniðugt væri að flota gólfið upp á nýtt þar. Smávægilegur gólfhalli er víðar í íbúðinni. Í fjórum herbergjum eru merki um að raki sé að koma inn gegnum útveggi.  Klæðning er á einum útvegg. Fúgur milli flísa á eldhúsi eru byrjaðar að losna. Í forstofu er búið að opna vegg inn í aðalrými, á eftir að ganga frá rafmagnsrofa sem var í þeim vegg. Kominn er tími á að draga í nýtt rafmagn. Kominn tími á að endurnýja tréverk hjá svölum. Bílskúr er klæddur með spónaplötum sem eru farnar að láta á sjá. Niðurfall í bílskúr rennur ekki í neina lögn. Þegar Árnatún var byggt er sagt að sum hús í brekkunni fyrir ofan hafi sigið, þar á meðal þetta hús. Það sé ástæðan fyrir halla og sigi í gólfum. Talið er að áhrifin af þeim framkvæmdum séu hætt enda áratugir síðan það var.
Athugast skal að bakaofn í eldhúsi fylgir ekki með húsinu.
Efri sérhæð með 4-5 svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr í tvíbýlishúsi við Skólastíg 32, Stykkishólmi.

***EIGN SEM ER ÞESSI VIRÐI AÐ SKOÐA***

* Fallegt útsýni
* Parket í stofu / eldhúsi hefur verið endurnýjað síðan myndir voru teknar
* Sólpallur og sérafnotaflötur
* Endurnýjað baðherbergi, innihurðar og parket að hluta.
* Góð staðsetning og veðursæld


Nánari upplýsingar veita :
Helen Sigurðardóttir lgf. Í síma 766 9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
****palssonfasteignasala.is****
***verðmat.is***

Birt stærð eignar samkv. ÞÍ er 207,30 og þar af er bílskúr 53,2 m2.
Eignin skiptist í forstofu, 4 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, svalir, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Forstofa er flísalögð og rúmgóð.
Eldhús er með parket á gólfi, innréttingu með góðu skápaplássi, helluborði, viftu og tengi fyrir uppþvottavél. Góður og bjartur borðkrókur við glugga.
Stofa / borðstofa er rúmgóð í góðu flæði frá eldhúsi. Þar er parket á gólfi og í stofu eru stórir gluggar. Fallegt útsýni.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta og var þá flísalagt og sett baðkar svo fátt eitt sé nefnt. Þá er það innrétting með handlaug og góðu skápa/skúffuplássi, upphengt salerni og handklæðaofn. Síðan myndir voru teknar er búið að endurnýja og setja upp sturtuhaus í baðkari og sturtugler.
Hol er flísalagt með útgengt út á svalir til suðvesturs.
Svefnherbergi 1 er flísalagt.
Svefnherbergi 2 er dúklagt.
Svefnherbergi 3 er með fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og var áður 2 svefnherbergi. Hægt væri að breyta aftur í tvö rými og útbúa svefnherbergi 5.
Þvottahús er með tengjum fyrir þvottavél / þurrkara.
Útgengt út á góðann sólpall. Af sólpalli er útgengt í garð.
Geymsla er með parket á gólfi og hillum.
Bílskúr er tvöfaldur og upphitaður, skráður 53,2 m2 með tveimur innkeyrsluhurðum. Önnur er rafdrifin. Bílskúr hefur verið skipt upp í tvö rými. Fyrir framan bílskúr er bílaplan með 2 bílastæðum.
Garður er stór og gróinn. Fyrir framan hús eru tré og rósarunni, í garðinum eru birkitré, víðir og margvíslegur gróður. Sólpallur er á lóðinni. Hellur eru fyrir framan hús. Samkv. eignaskiptayfirlýsingu hefur eignin sérafnotahlut á norðurhluta lóðar.

Viðhald hússins síðastliðin ár tiltelur ma. :
Gluggar hafa verið endurnýjaðir að hluta, dúkur er á þaki sem hefur fengið reglulega skoðun, ofnar hafa verið endurnýjaðir ásamt innihurðum og parketi að mestum hluta. Þá var ein hlið hússins nýlega sprunguviðgerð og máluð og drenað með annari hlið undir pallinum. 

Góð staðsetning og stutt í þjónustu einsog íþróttamiðstöð/sundlaug, grunnskóla og verslanir.

Nýjustu fréttir af fasteignamarkaði
Smelltu hér fyrir góð ráð fyrir kaupendur!

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/201827.650.000 kr.30.500.000 kr.207.3 m2147.129 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1969
53.2 m2
Fasteignanúmer
2116202
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfurgata 38
Skoða eignina Silfurgata 38
Silfurgata 38
340 Stykkishólmur
159 m2
Einbýlishús
413
351 þ.kr./m2
55.800.000 kr.
Skoða eignina Sæból 41
Bílskúr
Skoða eignina Sæból 41
Sæból 41
350 Grundarfjörður
172.9 m2
Raðhús
514
318 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Ennisbraut 2
Skoða eignina Ennisbraut 2
Ennisbraut 2
355 Ólafsvík
171.2 m2
Fjölbýlishús
624
315 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Brunnar 7
Bílskúr
Skoða eignina Brunnar 7
Brunnar 7
450 Patreksfjörður
155.1 m2
Einbýlishús
513
366 þ.kr./m2
56.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin