Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög gott raðhús á eftirsóttum stað að Selbraut 16 á Seltjarnarnesi. Raðhúsið lítur mjög vel út og virðist vel við haldið, góður suður garður, tvöfaldur bílskúr. Í húsinu eru upprunalega 4 svefnherbergi en eru nú 3 þar sem tvö voru sameinuð í eitt. Auk þess er sjónvarpsstófa, setu- og boðrðstofa auk eldhúss, gestasnyrtingar, baðherbergis, þvottahúss, geymslu og bílskúrs. Innangengt er í bílskúr. Fallegt hús á vinsælum stað. Fasteignamat sem tekur gildi 31.12.2026 er kr. 175.300.000.-Aðkoma að húsinu er falleg, og gengið inn stétt meðfram bílskúr og þaðan inní forstofu, þegar inní íbúðina er komið er svefnherbergisgangur til hægri með þremur (voru upprunalega fjögur) herbergjum og baðherbergi. Sjónvarpshol er framan við ganginn og gengið úr honum inní þvottahús og þaðan hægt að ganga útí garð eða inní gegnum geymslu og þaðan í bílskúrinn. Þegar upp fallegan stiga er komið er eldhús beint á móti uppgangi, gestasnyrting til vinstri og stór stofa og borðstofa sem snýr í suður með stórum gluggum. Panell er í lofti á efri hæð og á milli eldhúss og stofu. Hægt er að ganga út á stórar flísalagðar svalir úr stofu og snúa svalirnar til suðurs. Einnig er hægt að fara í gegnum dyr í timburþili útá þak bílskúrsins. Garðurinn sem snýr í suður er fallegur og vel hirtur.
Efri hæð:Stofa- og borðstofa eru stór með góðu parketi sem þó er komið nokkuð til ára sinna. Panelklætt loft. Útgengt á svalir.
Eldhús með góðri innréttingu sem ekki er upprunaleg en ekki ný, parket er á gólfinu.
Gestasnyrting með upprunalegri innréttingu.
Breiður og góður stigi er á milli hæða.
Neðri hæð:Forstofan er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hjónaherbergi er innst að sunnan í herbergjagangi, góðir fataskápar, dúkur á gólfi.
Baðhergergi innst í ganginum, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi og baðkar.
Barnaherbergi sem snýr í norður, parket á gólfi.
Skrifstofa/svefnherbergi, er með parketi á gólfi, hún var upprunalega tvö herbergi og eru hurðir á sínum stað og auðvelt að breyta til baka.
Sjónvarpsstofa er með parketi á gólfi og er þaðan gengið inní þvottahús.
Þvottahús með steingólfi, gott pláss, dyr útí garð.
Úr þvottahúsi er gengið inní
geymslu og þaðan í tvöfaldan
bílskúr.
Gott
bílaplan fyrir framan bílskúr og bílastæði í götunni.
Mjög gott hús sem lítur vel út að utan sem og innan nema bílskúr þarfnast aðhlynningar. Vinsæll og rólegur staður. Að sögn erfingja hefur eignin hlotið gott viðhald, húsið var málað að utan 2024, skpt um gler að hluta á efri hæð. Kominn er tími til að huga að gluggum/gleri sem eru upprunalegir sem og allar pípulagnir og raflagnir. Þak er upprunalegt.
Um dánarbú er að ræða og eru upplýsingar því takmarkaðar og eru kaupendur hvattir til að skoða eignina vel áður en kauptilboð er gert og kaupsamningur undirritaður. Eru kaupendur hvattir til að fá fagmann til að skoða eignina.
Smellið hér til að fá söluyfirlit
Nánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.