Aldir fasteignir og Brynjólfur Snorrason lgfs., kynna til sölu einbýli að Sóleyjargötu 35. Eignin er á þremur hæðum og skráð 261,8 fm að stærð, þar af íbúðarrými 241,1 fm og bílskúr 20,7 fm, en til viðbótar er rúmgott risloft sem er ekki í birtri stærð eignar. Skráð byggingarár er árið 1933 og bílskúrs er árið 1936. Á fyrstu hæð eru tvö anddyri, stigahús, herbergi, tvær stofur og eldhús, á 2. hæð er línskápur, þrjú herbergi, hjónaherbergi og baðherbergi og í kjallara er herbergi, tvær geymslur, þvottahús, þurrkherbergi og snyrting. Einstakt tækifæri á að eignast einbýli í Þingholtunum.
Ath. Eignin verður ekki sýnd í opnu húsi en áhugasamir aðilar geta haft samband við Brynjólf, brynjolfur@aldirfasteignir.is til að fá frekari upplýsingar um eignina og bóka skoðun. Nánari lýsing. 1. hæð.
Anddyri: Gengið inn á vesturgafli eignar, á gólfi er teppi.
Gangur/stigahol: Teppi á gólfi, opinn fataskápur og stigi upp á aðra hæð.
Herbergi 1: Er í dag hluti af stofu, lítið mál að nota sem svefnherbergi eða skrifstofu, gluggi til suðurs og teppi á gólfi.
Setustofa: Rúmgóð, teppi á gólfi, horngluggi til suðurs- og austurs, opið inn í borðstofu.
Borðstofa: Teppi á gólfi, gluggar til austurs, útgengi í garð eignar.
Eldhús: Inn af borðstofu, eldri heilleg innrétting, borðkrókur og gluggi með opnanlegu fagi. Frá eldhúsi er opið inn í anddyri bakdyrainngangs.
2. hæð.
Gangur: Gengið upp fallegan hálf-bogadreginn stiga upp á L-laga gang sem leiðir inn í önnur rými efri hæðar ásamt línskáp.
Herbergi 2&3: Var upphaflega tvö herbergi sem búið er að sameina í eitt stærra, hægt að breyta aftur til fyrri vegar. Í rými er innbyggður fataskápur og tveir gluggar til suðurs. Á gólfi er parket.
Herbergi 4: Innst af gangi, gluggi til suðurs og dúkur á gólfi.
Hjónaherbergi: Innst af gangi, afar rúmgott, stórir upprunalegir fataskápar, dúkur á gólfi, gluggar til austurs og útgengi á svalir.
Baðherbergi: Hægt að ganga inn á þremur mismunandi stöðum, tveimur frá gangi og úr hjónaherbergi. Sturtuklefi, gluggi með opnanlegu fagi, wc í sér rými þar sem er handlaug og gluggi. Á gólfi er dúkur.
Í lofti baðherbergis er hleri upp á risloft eignar sem er ekki meðtalið í birtri stærð eignar en þar er góð lofthæð og ýmsir möguleikar.
Í kjallara húseignar eru tvær geymslur (önnur köld), rúmgott herbergi með glugga til suðurs og teppi á gólfi, gömul kolageymsla, rúmgott þurrkherbergi, snyrting og þvottahús.
Skv. upplýsingum frá seljendum var þak húseignar endurnýjað árið 2021.
Umhverfis eign er stór garður og eign tilheyrir bílskúr sem er skráður 20,7m
2 að stærð.
Tækifæri til að eignast einbýli í Þingholtunum.Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason lgfs., brynjolfur@heimili.is Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.