Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Hraunbær 38

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
58.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
850.085 kr./m2
Brunabótamat
30.900.000 kr.
Byggt 1967
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20445983
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu tveggja herbergja íbúð á annari hæð í snyrtilegu fjölbýli að Hraunbæ 38, 110 Reykjavík. Eignin er skráð 58,7 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 53,5 m2 og geymsla 5,2 m2, og samanstendur af anddyri, baðherbergi, svefnherbergi, eldhúsi og stofu í opnu rými þaðan sem útgengt er á suður svalir eignar. Á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús auk þess sem eign tilheyrir sérmerkt bílastæði. Ath. Eignin er laus við undirritun kaupsamnings. Frábær fjárfesting og/eða fyrstu kaup!

Nánari lýsing.
Anddyri:
Tvöfaldur fataskápur. Parket á gólfi.
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Á gólfi er parket og í eldhúsi er gluggi til suðurs. 
Stofa: Í opnu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á suður svalir.
Baðherbergi: Veggfestur spegill, skápur við hlið spegils, neðri skápar undir handlaug, vegghengt wc, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Svefnherbergi: Rúmgott með ágætum fataskáp, parketi á gólfi og glugga til suðurs. 
Á jarðhæð húseignar er sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Íbúðinni tilheyrir sérmerkt bílastæði og sameiginlegur garður með leiktækjum og knattspyrnuvelli. 

Falleg og vel skipulögð íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í verslun og þjónustu, Árbæjarlaugina og fallega náttúru Elliðárdalsins. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, brynjolfur@heimili.is

 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skyggnisbraut 1
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Skyggnisbraut 1
Skyggnisbraut 1
113 Reykjavík
53.6 m2
Fjölbýlishús
211
1136 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 7
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 7
Jöfursbás 7
112 Reykjavík
78.3 m2
Fjölbýlishús
312
957 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Furugrund 70
Hleðslustöð
Skoða eignina Furugrund 70
Furugrund 70
200 Kópavogur
72.8 m2
Fjölbýlishús
312
864 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Miklabraut 72
Opið hús:31. ágúst kl 14:00-14:30
Stofa og eldhús
Skoða eignina Miklabraut 72
Miklabraut 72
105 Reykjavík
64 m2
Fjölbýlishús
312
933 þ.kr./m2
59.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin