BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EYJÓLFSSTAÐASKÓGUR 16, 701 Egilsstaðir. Sumarhús/Heilsárshús á vinsælum stað í Eyjólfsstaðaskógi.
Nýlegt hús og gróin lóð, með útsýni til fjalla, eign sem vert er að skoða. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er timburhús á tveimur hæðum, birt stærð 74.1 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa/hol, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi og svefnloft. Geymsluskúr u.þ.b. 9 m² á lóðinni.
Nánari lýsing:Forstofa/hol með fatahengi, þaðan liggur stigi upp á svefnloft. Búrskápur er aftan við stiga, hitakútur (200L) er undir stiga.
Frá holi er innangengt í önnur rými hússins. Rafmagnstafla er í forstofu.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, upptekið loft er í alrými, Í stofu er
kamína (virk). Útgengt úr alrými út á
timburverönd.
Eldhús, IKEA innrétting, spanhelluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
Tvö herbergi, annað stærra herbergið er með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi, Brúnás innrétting, handlaug, speglaskápur, rafmagnsofn á vegg, pláss fyrir þvottavél í vinnuhæð, þvottavél fylgir.
Timburstigi liggur upp á opið
svefnloft, gluggi.
Gólfefni: Greni gólfborð á gólfum, nema á baðherbergi þar er vínylparket.
Húsið er kynnt með varmadælu „loft í loft“, stýring á vegg og stýring í gegnum síma (app).
Húsið er einingarhús frá Landshús, timburhús á steyptum súlum, timburgólf á dregurum. Húsið er klætt að utan með timburklæðningu, timburhurðar og gluggar, járn á þaki.
Timburverönd umlykur húsið á alla vegu
. Heitur rafmagnspottur 6-8 manna er á hellulagðri verönd á lóðinni. Malarplan er við húsið. Rotþró er við húsið.
Geymsluskúr u.þ.b. 9 m² er á lóðinni, rafmagn er í skúrnum, hillur og skápar í skúr fylgja með.
Lóðin er skógi vaxin, villtur gróður og tré í bland við trjá- og runnagróður sem eigandinn hefur gróðursett, grasblettur er næst húsi.
Lóðin stendur í skipulögðu sumarbústaðalandi, stærð lóðar er 3.785,0 m², leigulóð í eigu Skógræktarfélags Austurlands.
Sjá í lóðarleigusamning 9.gr. Á lóðinni gilda reglur sveitarfélagsins um húsdýra- og gæludýrahald.
Óheimilt er að grisja skóglendi á lóðini umfram það sem nauðsynlegt er vegna eðlilegra nota af lóðinni.
Allt óþarfa jarðrask er óheimilt. Öll meðferð skotvopna er bönnuð.Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er aðeins heimilt að reisa eitt hús ásamt útihúsi. Hver bústaður má vera allt að 150 m² að grunnfleti,
auk þess má byggja á lóðinni útihús (geymsla, gestahús og gróðurhús) allt að 40 m² að stærð.
Smellið hér til að sjá deiliskipulag Eyjólfsstaðaskógar, svæði D,E og F.
Smellið hér til að sjá landeignaskrá land númer 187924.Ekkert lóðarfélag er starfandi, snjómokstur er rukkaður eftir þörfum.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Stærð: Sumarbústaður 74.1 m². Eyjólfsstaðaskógur 16.Brunabótamat: 41.150.000 kr.
Fasteignamat: 42.300.000 kr. Fasteignamat 2026: 42.900.0000 kr.
Byggingarár: 2019.
Byggingarefni: Timbur.
Rekstrareiningar.
01.0101 Sumarhús 64.2 Brúttó m².
01.0102 Svefnloft 34.5 Brúttó m².
01.0103 Verönd 50.9 Brúttó m².
Landnúmer 187924. Sumarbústaðaland 3.785,0 m²