Fasteignaleitin
Opið hús:18. okt. kl 13:00-13:30
Skráð 15. okt. 2026

Holtsgata 34

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
47.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
1.057.203 kr./m2
Fasteignamat
46.850.000 kr.
Brunabótamat
29.250.000 kr.
Byggt 1942
Garður
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2000778
Landnúmer
100278
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Rafmagnstafla fyrir húsið (2007) og fyrir íbúðina (2009) endurnýjaðar. * 2011 Dregnar hafa verið nýjar raflagnir í hluta íbúðarinnar að sögn seljenda.
Frárennslislagnir
 Klóaklagnir undir húsinu og út í götu voru fóðraðar og skipt um brunn í lóð hússins 2013 að sögn seljanda.
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Skipt um þakjárn 2007 að sögn seljenda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
19,58
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Engar framkvæmdir samþykktar en rætt um að bera á grindverk og einnig hvort eigi að taka skeljasand af húsi og mála - sjá yfirlýsing húsfélags.
Valhöll fasteignasala og Vilborg G, lgfs kynna nýja eign:
FALLEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í FJÓRBÝLISHÚSI Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
Eignin er mikið endurnýjuð.
Hverfið er rólegt með miðbæinn í göngufæri.

Íbúðin er skráð 46,4 fm skv. FMR og skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi,gang og geymslu. Þá er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi í sameign.
Húsið er 2 hæðir, kjallari og ris.
Gengið er inn um sameigninlegan inngang.
Framan við inngang íbúðar er gott fatahengi.
Forstofa/gangur tengir saman rými íbúðar með flísum á gólfi.
Stofan er rúmgóð  með parketi á gólfi.
Eldhús er rúmgott með fallegri hvítri innréttingum electrolux bakaraofni, viftu, span helluborði ásamt innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Flísaplötur eru milli skápa og parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi með upphengdu salerni, opinni sturtu, vaskaskáp og spegla skáp yfir vaski. Fallegar flísaplötur  á veggjum og flísar á gólfi.
Geymsla íbúðar er undir tröppum á stigagangi.
Þvottahús er í sameign þar sem hver íbúð er með sína vél.
Þurrkherbergi er í sameign.
Gólfefni: Harðparket á stofu, eldhús og svefnherbergi. Gólfflísar á forstofu og baðherbergi. 
Hér er um að ræða mikið endurnýjaða íbúð með miðbæinn í göngufæri. 
Bílastæði eru í götunni.
Frábær staðsetning á rólegum stað í Gamla Vesturbænum þaðan sem stutt er í skóla, verslanir og þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@valholl.is


Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað að sögn seljenda:
Íbúð:
  • 2010 Ofnalagni endurnýjaðar. 
  • 2011 Raflagnir endurnýjaðar að hluta.
  • Gólfefni íbúðar endurnýjuð sem og parketlistar.
  • Innrétting í eldhúsi og eldhústæki endurnýjuð. 
  • Baðherbergi: Innrétting, blöndunartæki, salerni, flísar á gólf og flísaplötur á veggi endurnýjað.
  • 2026 Gólfefni í eldhúsi endurnýjuð.
Húsið:  Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað að sögn seljenda:
  • Skipt um þakjárn 2007
  • Rafmagnstafla fyrir húsið (2007) og fyrir íbúðina (2009) endurnýjaðar.
  • 2011 Dregnar hafa verið nýjar raflagnir í hluta íbúðarinnar.
  • 2013 Skipt um brunn í lóð hússins og niðurföll.
  • 2011 Skipt um gler og glugga í húsinu.
  • 2012 Múrviðgerðir að utan, steyptur nýr þakkantur og renna.
  • 2020 voru klóaklagnirnar fóðraðar.
  • 2022 var fyllt upp í nokkrar spurngur sem fundust á útveggjum.
  • 2023 var girt fyrir aftan húsið, þar sem gengið er inn í húsið.
  • 2026 var girt fyrir framan húsið sú hlið er sem snýr að götunni.

Eign sem vert er að skoða!
Hafið samband við Vilborgu í síma 891-8660 eða vilborg@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Sérstaklega undanþegið fylgifé: S.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  •   Nýtt - Eignin er nýbygging.
  •   Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  •   Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  •   Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  •   Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/02/202543.700.000 kr.46.000.000 kr.47.2 m2974.576 kr.Já
26/10/202127.550.000 kr.37.500.000 kr.47.2 m2794.491 kr.Já
19/07/201824.700.000 kr.23.000.000 kr.47.2 m2487.288 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Freyjugata 28 1.hæð
Bílskúr
Opið hús:19. okt. kl 17:00-17:30
Freyjugata 28 1.hæð
101 Reykjavík
141 m2
Fjölbýlishús
513
989 þ.kr./m2
139.500.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 34 (202)
Efsta hæð
Opið hús:21. okt. kl 17:45-18:15
Dalsbraut 34 (202)
260 Reykjanesbær
64,5 m2
Fjölbýlishús
211
774 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42F
Skoða eignina Grandavegur 42F
Grandavegur 42F
107 Reykjavík
89,9 m2
Fjölbýlishús
221
1000 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 - 202
Opið hús:20. okt. kl 17:00-17:30
Ásvellir 5 - 202
221 Hafnarfjörður
87,8 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin