Fasteignaleitin
Opið hús:10. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 5. ágúst 2026

Skerjabraut 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
132.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
942.642 kr./m2
Fasteignamat
101.800.000 kr.
Brunabótamat
71.300.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2015
3. hæð
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2351433
Landnúmer
117557
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Skerjabraut 1, íbúð 301, 170 Seltjarnarnesi.
Virkilega falleg og vel skipulögð 132,5 m², 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi sem byggt var árið 2015.
Íbúðin er einstaklega björt, með aukinni lofthæð og stórum gluggum. Rúmgóð rými, vandaðar innréttingar og tæki ásamt fallegu eikarparketi setja glæsilegan svip á íbúðina.
Eignin skiptist í anddyri með innbyggðum fataskáp, þvottahús, rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi með skápum, baðherbergi og sérgeymslu í kjallara.
Frábær staðsetning þar sem nærþjónusta Seltjarnarness og Vesturbæjarins er í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í anddyri með innbyggðum fataskáp.
Þvottahús: Er inn af anddyri. Þar er innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Einnig er ræstivaskur og upphengdur tvöfaldur skápur (á teikningu er þetta gestasnyrting)
Alrými: Fallegt, opið, rúmgott og bjart alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á skemmtilegan hátt. 
Stofa og borðstofa: Afar rúmgóðar og fallegar samliggjandi stofur, opnar við eldhús. Útgengt er á rúmgóðar svalir með virkilega fallegu útsýni.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi og stórri eyju með aðstöðu fyrir barstóla. Marmari er á eldhúsbekk og eyju og tæki eru vönduð.
Hol er Inn af stofu og tengir saman alrými og svefnherbergisgang.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er rúmgóð sturta með glervegg og handklæðaofni ásamt skáp.
Svefnherbergi I: Afar rúmgott, 15,1 m², með fataskáp.
Svefnherbergi II: Afar rúmgott, 14 m², með mjög góðu skápaplássi.
Svefnherbergi III: Gott herbergi, 8,3 m², staðsett nærri anddyri.
Sérgeymsla í kjallara, skráð 7,7 m².

Vandað eikarparket er á allri íbúðinni að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi, sem eru flísalögð.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sitt tengi. Einnig er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Næg bílastæði eru á sameiginlegu bílaplani Skerjabrautar 1 og 3. Tvö rafhleðslustæði eru á bílaplaninu.
Núna standa yfir múrviðgerðir og málun á húsinu og verður því verki lokið á þessu ári og greiðist úr hússjóði og af seljanda.

Virkilega falleg og vel skipulögð eign í nýlegu lyftuhúsi í grónu og eftirsóttu hverfi á Seltjarnarnesi. Fjölbreytt verslun og þjónusta er í göngufæri ásamt Sundlaug Seltjarnarness, líkamsrækt og íþróttasvæði Gróttu. Þá er einnig stutt í alla helstu nærþjónustu Vesturbæjarins, svo sem Vesturbæjarlaug, KR-svæðið, Kaffi Vest og Melabúðina.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/06/202593.300.000 kr.120.000.000 kr.132.5 m2905.660 kr.
06/11/20145.030.000 kr.49.900.000 kr.132.5 m2376.603 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Arnarsmári 40
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Arnarsmári 40
Arnarsmári 40
201 Kópavogur
127.3 m2
Fjölbýlishús
423
840 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 2
Bílastæði
Skoða eignina Langalína 2
Langalína 2
210 Garðabær
156.8 m2
Fjölbýlishús
413
746 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Eiríksgata 19 neðri hæð
Eiríksgata 19 neðri hæð
101 Reykjavík
133.2 m2
Fjölbýlishús
523
938 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 108 (209)
Kársnesbraut 108 (209)
200 Kópavogur
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
585 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin