Skráð 23. feb. 2026

Valshlíð 3 - 109

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
92 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
998.913 kr./m2
Fasteignamat
80.800.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532564
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
9
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
Björt og rúmgóð íbúð með tveimur svefnherbergjum, fallegu og rúmgóðu alrými, þvottaherbergi og suðursvölum.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

Þrír kaupmöguleikar í boði. 
* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur 


Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð er 92 fm þar af 7,1 fm geymsla í kjallara.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suðursvalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.
 
Nánari lýsing:
Í anddyri er góður fataskápur.
Gengið er inn í rúmgott alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir. Eldhús er með eyju. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa. Blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum.
Bjart og rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, leirljósum gólfflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0034.
Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
 
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 
 
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (422)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (422)
102 Reykjavík
90 m2
Fjölbýlishús
312
1043 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (227)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (227)
102 Reykjavík
90.9 m2
Fjölbýlishús
312
1000 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (327)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (327)
102 Reykjavík
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
89.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin