Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
326 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
121.800.000 kr.
Fermetraverð
373.620 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
304100726
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ OG FALLEG EINBÝLISHÚS* *FRÁBÆR STAÐSETNING VIÐ GOLFVÖLL* *STÓR BÍLSKÚR*

Stórglæsileg einbýlishús á tveimur hæðum, með stórum bílskúr. Góður sér garður með einkasundlaug, 4 svefnherbergi, 3 baðherbergi og eitt gestasalerni. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Vönduð og falleg hús með miklum möguleikum.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 


Frábær staðsetning, fallegt umhverfi inni á hinu vinsæla La Finca golfsvæði auk þess sem ótal fleiri golfvellir eru í næsta nágrenni. Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Um 20-30  mín akstur frá flugvellinum í Alicante og ca. 15 mín akstur á fallega strönd.

Nánari lýsing:
Gengið er inn á efri hæð hússins og þar er rúmgóð og björt stofa og borðstofa vel tengd eldhúsi með vandaðri og fallegri innréttingu. Stórir gólfsíðir gluggar í stofu. Glæsileg hjónasvíta með miklu skápaplássi og sérbaðherbergi. Á hæðinni er einnig gestasalerni. Útgengi er út í garðinn úr bæði eldhúsi, stofu og svefnherbergi.

Gengið er úr stofu niður á neðri hæð hússins og þar tekur við mjög rúmgott hol/miðrými. Svefnherbergin eru þrjú, þar af eitt mjög rúmgott með sérbaðherbergi. Annað baðherbergi er jafnframt staðsett á hæðinni. Útgengt er úr öllum svefnherbergjum út í garðinn. Þvottahús er með góðri aðstöðu og innangengt er úr holi inn í stóran bílskúr með gluggum sem gefur ýmsa möguleika. 
 
Hér er um að ræða rúmgott og glæsilegt einbýlishús á friðsælum stað, frábærum fyrir golfarann. Hús sem heldur vel utan um stórfjölskylduna með góðri aðstöðu fyrir ýmis áhugamál eða vinnu. Vandar innréttingar og frágangur.

Verð: frá 840.000 evrur + kostn. (121.800.000ISK + kostn - gengi 1Evra=145ISK)

Húsin eru 326 - 365 fm
Lóðir eru 349 - 431 fm

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílskúr, air con, 
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
304100726

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bæjartún 4
Bílskúr
Skoða eignina Bæjartún 4
Bæjartún 4
200 Kópavogur
348.4 m2
Einbýlishús
937
536 þ.kr./m2
186.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
122 m2
Einbýlishús
423
688 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Los Alcázares - Spánn
Los Alcázares - Spánn
Spánn - Costa Blanca
118 m2
Einbýlishús
533
838 þ.kr./m2
98.850.000 kr.
Skoða eignina Bleikjukvísl 20
Bílskúr
Skoða eignina Bleikjukvísl 20
Bleikjukvísl 20
110 Reykjavík
317.3 m2
Einbýlishús
934
692 þ.kr./m2
219.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin