Fasteignaleitin
Opið hús:04. nóv. kl 16:30-17:00
Skráð 30. okt. 2026

Breiðvangur 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
163.9 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.900.000 kr.
Fermetraverð
542.404 kr./m2
Brunabótamat
72.790.000 kr.
Byggt 1976
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20739463
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Rúmgóð útsýnisíbúð á efstu hæð með bílskúr í Norðurbæ Hafnarfjarðar
Falleg og rúmgóð íbúð á 4. og efstu hæð í  Norðurbænum í Hafnarfirði. Mikið útsýni er úr íbúðinni með glugga í þrjár áttir,
sem gefur góða birtu og skemmtilega tengingu við umhverfið. Með eigninni fylgja tvær rúmgóðar geymslur í kjallara og bílskúr.
Heildarstærð eignarinnar er 163,9 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin 118,1 fm, geymslurnar eru 9,4 fm og 12,3 fm og bílskúrinn 24,1 fm.

Nánari lýsing
Forstofa og hol:
Forstofa með parketi á gólfi. Frá holi, sem einnig er parketlagt, er gengið út á lokaðar útsýnissvalir þar sem gott er að njóta útsýnisins.
Eldhús:
Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu, góðum borðkrók og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Ofn er staðsettur í vinnuhæð, helluborð og vifta ( útblástur leiddur út á svalir), korkparket frá Þ. Þorgrímssyni á gólfi.
Þvottahús:
Þvottahús er inn af eldhúsi og þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Einnig eru snúrur, hillur og skápar til geymslu. Dúkur á gólfi og opnanlegur gluggi .
Stofa og borðstofa:
Rúmgott og bjart rými með fallegu útsýni yfir hraunið. Þar er gott pláss fyrir bæði setustofu og borðstofu.
Hjónaherbergi:
Mjög rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi og parketi á gólfi.
Nýrri skápur með vinnuborði sem er hægt að loka af með skáphurðum, nýtist  t.d. fyrir saumvél og vinnuuaðstöðu.  
Svefnherbergi:
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Íbúðin er skráð fimm herbergja, en hjónaherbergi og aukaherbergi hafa verið stækkuð þannig að íbúðin er nú með tveimur svefnherbergjum.
Lítið þarf til að breyta aukaherberginu aftur í tvö herbergi, hurðin er til staðar.
Baðherbergi:
Mjög rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, fallegri innréttingu, baðkari og opnanlegum glugga. Baðherbergið hefur verið stækkað frá upphaflegum teikningum.
Geymslur:
Tvær rúmgóðar geymslur eru í kjallara, 12,3 fm og 9,4 fm. Gluggi er á stærri geymslunni.
Bílskúr:
Bílskúrinn er 24,1 fm að stærð og með vinnuaðstöðu innst. Hann er með rafmagnsopnara, ofni og köldu vatni. Sérstæði er fyrir framan bílskúrinn.
Í sameign er einnig hjóla- og vagnageymsla og sameign hússins er snyrtileg.

Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda

2026: Ný hitaveitugrind.
2026: Ný hurð í inngang stigagangs sem er rafstýrð, rafstýrð opnun með flögu og hnappur að innan til að opna sjálfvirkt.
2025: Rafhleðslustaurar við enda húss nr. 18 og nýtt rafmagn í stigagangi.
2023: Nýr þakpappi á bílskúr.
2022–2024: Lóð tekin í gegn. Hiti lagður í stéttar fyrir framan húsið, ruslatunnuhólf steypt ofl.
2021: Drenað í kringum allt húsið.
2017: Skipt um þak, skipt um gler og gluggakarma á tveimur hliðum hússins og hluta þeirrar þriðju. 

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hagamelur 35
Skoða eignina Hagamelur 35
Hagamelur 35
107 Reykjavík
180 m2
Hæð
725
930 þ.kr./m2
167.400.000 kr.
Skoða eignina Tröllakór 9-11
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:05. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tröllakór 9-11
Tröllakór 9-11
203 Kópavogur
162,6 m2
Fjölbýlishús
514
692 þ.kr./m2
112.500.000 kr.
Skoða eignina Daggarvellir 4A
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Daggarvellir 4A
Daggarvellir 4A
221 Hafnarfjörður
102,2 m2
Fjölbýlishús
514
684 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Skeiðarvogur 141
Skeiðarvogur 141
104 Reykjavík
163,6 m2
Raðhús
524
762 þ.kr./m2
124.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin