Virkilega björt og rúmgóð 4ra herbergja, 125,8 fm íbúð á 2 hæð við Þorrasali 13, Kópavogi. Sér inngangur beint inn af bílaplani ofan við hús. Rúmgott alrými með stórkostlegu óhindruðu útsýni yfir golfvöll GKG í suðvestur að Vífilstöðum. Mjög stórar yfirbyggðar svalir út af stofu. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara. Húsið var byggt árið 2015.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is Nánari lýsing:
Komið inn í íbúðina um sér inngang. Íbúðin skiptist í forstofu með fataskápum, tvö svefnherbergi með fataskápum og einu auka herbergi sem búið er að opna og nýtist í dag sem sjónvarpsherbergi. Mjög rúmgóð stofa sem er opin inn í eldhús. Sér þvottahús og yfirbyggðar svalir. Ljósar stílhreinar flísar eru á öllum gólfum íbúðarinnar.
Eldhúsið með rúmgott með stein á borði, vönduðum tækjum og tvöföldum ísskáp. Góð vinnuaðstaða og mikið skápapláss. Hátt eldhúsborð með góðri aðstöðu. Borðstofa og stofa liggja saman í framhaldi af eldhúsi. Stórir gluggar í stofu sem gera íbúðina mjög bjarta með virkilega fallegu útsýni. Yfirbyggðar svalir eru 18,8 fm og nýtast allt árið sem framlenging af stofu. Svalirnar eru ekki inni í birtum fermetrum íbúðarinnar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóður sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn og falleg hvít innrétting með speglaskáp.
Sér geymsla fylgir íbúðinni í kjallara sem er 7,4 fm. Bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð. Lyfta úr bílakjallara upp á hæð íbúðarinnar. Sameign er öll hin snyrtilegasta. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Næg bílastæði ofan við húsið.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.