Opið hús:05. mars kl 17:00-17:30
Skráð 3. mars 2026

Ástu-sólliljugata 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
195 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
717.436 kr./m2
Fasteignamat
111.800.000 kr.
Brunabótamat
99.100.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 2015
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2314266
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Síðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir í suðurátt
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Afsal - 441-R-005417/2025
Stofnskjal lóðar - 411-T-007016/2007
Lóðarleigusamningur - 411-S-006577/2007 - Stærð lóðar 1289,3fm. Lóðarleigusamningur til 75 ár frá 15,05, 2007. Kvaðir um lagnir,bílastæði,sölu-og byggingarsk.tímamörk,sjá skjal
Eignaskiptayfirlýsing - 441-B-001559/2016 - Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu - Birt stærð séreignar 0202 mhl 01: 195,0m2. Birt stærð íbúðar og geymslu mhl 01: 163,3 m2. Birt stærð bílageymslu 0204 mhl 01: 31,7 m2. Eign 0202 tilheyra eftirfarandi hlutfallstölur. Hlutfallstala í húsi 29,37%. Hlutfallstala í lóð 29,37%.
Innra skipulag eignarinnar ber ekki saman við teikningar, svefnherbergi hefur verið breytt í fataherbergi og þvottahús sett í bílskúr og gestasnyrting þar sem þvottahús var áður.
** Opið hús fimmtudaginn 5. mars frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg og mikið endurnýjuð 195 m2, 4ra herbergja íbúð/hæð í fjórbýlishúsi með bílskúr og fallegu útsýni við Ástu-Sólliljugötu 22 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 195,0 m2, þar af íbúð 149,3 m2, bílskúr 31,7 m2 og geymsla 14,0 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, gang, þrjú svefnherbergi, tvö þeirra með fataherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Innangengt er í bílskúr úr forstofu. Sérgeymsla á jarðhæð fylgir eigninni. Gott skipulag, vönduð gólfefni og fallegar innréttingar. Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Helgafelli. Stutt í skóla og vinsælar gönguleiðir í ósnortri nátturinni. Eignin nýtur víðáttumikils útsýnis yfir Mosfellsbæ og fallegrar fjallasýnar til Bláfjalla og Esju. Víðsýnið skapar sterka heildarupplifun sem nýtur sín jafnt í dagsbirtu sem og þegar kvöldkyrrðin tekur við.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda alrými eignarinnar með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem gera rýmið bjart og fallegt. Rafdrifin gluggatjöld auðvelda birtustýringu í stofu. Eldhúsið er klætt Calacatta Gold Marble Quartz steini á eyju, borðplötum, tækjaskáp og milli skápa sem gefur rýminu tímalausan og fágaðan svip. Falleg hvít háglans eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Innbyggð og vönduð heimilistæki, þar á meðal spanhelluborð, veggofn með sjálfhreinsun, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stofan er hlýleg og stílhrein með rafmagnseldstæði frá Funa. Fyrir ofan eldstæðið er sérsmíðaður sjónvarpsveggur sem rammar rýmið fallega inn. Úr stofu er útgengt á svalir til suðurs.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með góðu fataherbergi, teppi frá Parka á gólfi og útgengi á svalir til suðurs. Fataherbergið var áður svefnherbergi. Opnað hefur verið inn í hjónaherbergið og lokað fyrir hurðargat á gangi. Auðvelt væri að breyta aftur í fjórða svefnherbergið.
Svefnherbergi 2 er mjög rúmgott með Quick-Step harðparketi á gólfi og fataherbergi. Á teikningu er gert ráð fyrir að herbergið sé hjónaherbergi.
Svefnherbergi 3 er Quick-Step harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug baðkari, sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Gangur er með Quick-Step harðparketi á gólfi.
Gestasalerni er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, handlaug og upphengdu salerni.
Bílskúr er rúmgóður með epoxy á gólfi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er í bílskúr.
Sérgeymsla er á jarðhæð, skráð 14 m2.

Verð kr. 139.900.000,-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/02/2025102.150.000 kr.117.500.000 kr.195 m2602.564 kr.
04/04/201635.750.000 kr.41.800.000 kr.195 m2214.358 kr.
18/01/201622.500.000 kr.39.500.000 kr.357 m2110.644 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2015
3.2 m2
Fasteignanúmer
2314266
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.650.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stóriteigur 29
Bílskúr
Opið hús:11. mars kl 17:30-18:00
Sýnum samdægurs
Skoða eignina Stóriteigur 29
Stóriteigur 29
270 Mosfellsbær
192.5 m2
Einbýlishús
524
722 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Stóriteigur 36
Bílskúr
Skoða eignina Stóriteigur 36
Stóriteigur 36
270 Mosfellsbær
211.7 m2
Einbýlishús
523
708 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Hagaland 10
Bílskúr
Skoða eignina Hagaland 10
Hagaland 10
270 Mosfellsbær
175.1 m2
Einbýlishús
514
799 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Arnartangi 29
Bílskúr
Opið hús:03. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Arnartangi 29
Arnartangi 29
270 Mosfellsbær
174.2 m2
Einbýlishús
513
785 þ.kr./m2
136.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin