Valhöll fasteignasala kynnir í sölu: Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja íbúð í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi við Asparlaut 24, 230 Hlíðahverfi í Reykjanesbæ.
Íbúð er merkt 05-03, fastanúmer: 252-4386. Alls skráð 190,1 m² íbúð á hæð er 165,6 m² og sérgeymsla í kjallara er þar af skráð 14,8 m².
Bílskúr merktur: 102 að stærð 24,9 m² fylgir eigninni. Einnig er sér bílastæði í bílageymslu merkt B-10 Afhending við kaupsamning.
--- SÝNUM SAMDÆGURS –
Hafið samband við eftirfarandi sölumenn fyrir skoðun og frekari upplýsingar:
Sölvi Þór Sævarsson lgfs, í s. 618-0064/ solvi@valholl.is
eða Gylfi þór Gylfason lgfs, í síma 770-4040 / gylfi@valholl.is
Asparlaut 24-26 eru nýleg 5 hæða fjölbýlishús með lyftu og sameiginlegri bílageymslu í nýju hverfi í Reykjanesbæ. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Arkitekt ARKÍS.
Stæði í opinni bílageymslu fylgja flestum íbúðum.
Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með vönduðum innréttingum og fataskápum frá GKS. Flísar verða á baðherbergi og þvottahúsi en án annara gólfefna.
Íbúðirnar eru í nálægð við útivistar- og náttúrusvæði. Stutt í fallegar gönguleiðir þar sem hverfið er vel staðsett. Stutt er í stofnbrautir.
Afhendingartími: Íbúðirnar er tilbúnar til afhendingu í dag.
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hér: Asparlaut 3. Smelltu hér https://vefir.onno.is/bygg/asparlaut-1-5/ibudir/3/#/ibud/0201 til að sjá nánari upplýsingar um íbúðina
Nánari lýsing
íbúð 05-03:
Anddyri: Fataskápar frá GKS, gólf án gófefna.
Eldhús/borðstofa og stofa: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá GKS. Eldhúsvaskur og blöndunartæki fylgja frá GKS. Bora helluborð með innbyggðu sogi, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur frá Siemens. Virkilega bjart og fallegt rými með innbyggðri lýsingu í loftum, með dimmerum.
Hjónaherbergi/svefnherbergi: Með sérsmíðuðum fataskápum/ fataherbergjum frá GKS.
Baðherbergi: Vandaðar flísar frá Flísabúðinni á gólfi og veggjum sem ná að lofti, innrétting frá GKS. Handlaugarskál með hitastýrðu blöndunartæki, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu. Sturta skilast með innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhlið úr gleri.
Þvottahús: Gólf flísalagt, innréttingar frá GKS með skolvaski og blöndunartæki í borði. Niðurfall í gólfi, tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Geymslur: Geymsla í séreign sem fylgir íbúðinni, Rúmgóð vagna og hjólageymsla í sameign.
Næsta umhverfi: Umhverfið um eignina verður mjög skemmtilegt með skjólgóðu miðjusvæði fyrir íbúa. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu og öll helstu íþróttamannvirki, fjölbrautaskóla og útivistarsvæði.
Íbúðirnar að Asparlaut 24-26eru alls 34 talsins í tveimur vönduðum álklæddum lyftuhúsum með sameiginlegri bílageymslu sem fylgir flestum íbúðum.
Yfirlit úr skilalýsingu:
- Innihurðir eru yfirfelldar frá Birgison / Parka
- Útihurðir frá Rational
- Íbúðirnar eru upphitaðar með ofnakerfum
- Loftræsti-, vatns,- og þrifalagnir fylgja frágengnar. Forhitari er á heitu neysluvatni
- Póstkassar verða í stigahúsi
- Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space frá Kone
- Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa, gólf steypt og vélslípað og bílastæði merkt
- Sorpgeymsla verður á sérmerktu svæði á lóðinni
- Þak er með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörupappa ofan á steypta plötu. Einangrun er 200mm rakavarin þrýsti einangrun.
- Útiljós og rafmagnstengill er á öllum svölum
- Lóð verður fullfrágengin. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið. Bílastæði eru malbikuð og eða hellulögð.
Íbúðirnar skilast allar án gólfefna á alrýmum og herbergjum en með flísum á votrýmum. Að öðru leyti fullbúnar að innan með fullbúinni úti aðstöðu.
Nánari upplýsingar veita:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is
Gylfi þór Gylfason löggiltur fasteignasali. í síma 770-4040 / gylfi@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.