Fasteignaleitin
Skráð 13. júní 2024
Deila eign
Deila

Njarðarbraut 5

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
56.6 m2
Verð
24.900.000 kr.
Fermetraverð
439.929 kr./m2
Fasteignamat
11.400.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2024
Sérinng.
Fasteignanúmer
2531684
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
12
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Bil nr. 12. 

Ásberg fasteignasala kynnir til sölu ný og glæsileg atvinnu- og frístundabil / geymslubil til sölu við Njarðarbraut  5 í Reykjanesbæ. Lóðin verður afgirt með malbikuðu bílastæði, lokuðu rafstýrðu hliði og öryggismyndavélum.

Um er að ræða 26 bil í einu einlyftu húsi. Bilin eru skráð á bilinu 56,6 - 58,3 m² á stærð og skiptast í um 41 m² gólfflöt og um 16 m² milliloft. 

Öll bil eru með millilofti með stiga og handriði, sér salerni með handlaug ásamt lítilli kaffiinnréttingu. Sér hita- og rafmagnsinntök eru í hverju bili. Gólfhiti í hverju bili. Vélslípaðar gólfplötur. Þriggja fasa rafmagn og tenging fyrir hleðslutöð inn í hverju bili.

Hörmann bílskúrshurðin með rafmagnsmótor og er um 3,0 m á breidd og um 3,2 m á hæð. Gönguhurð með opnanlegum gluggum fyrir ofan hurð.

Hæð frá gólfi uppundir milliloft er 2,8 m. Gólfhæð upp í mæni er um 6 m.

Áætlaður afhendingartími er sept-okt  2024.

Nánari lýsing:
Um er að ræða bil nr. 12.  Bilið er skráð 56,6 m² á stærð sem skiptist í 41,3 m² gólfflöt ásamt 15,3 m² millilofti. 

Byggingarlýsing:

Burðarvirki: Sökklar og botnplata eru staðsteypt með járnbentri steinsteypu.

Útveggir: berandi innveggir og milligólf eru úr timbri. Útveggir Útveggjagrindur eru einangraðar með steinull og klæddar að utanverðu með 9 mm krossvið og varðar með málmklæðning sem er festar á viðurkennt festingarkerfi. Að innanverður eru út veggir raksperrtir með 0,2 mm þolplasti og kllæddir með spónarplötu og gifsplötu sem innsta lag. Gæta skal að loftbil milli einangrunar og útveggjaklæðningar er a.m.k. 20 mm.

Þakvirki: Þakvirki er uppbyggt af yleiningum einangraðar með 175 mm steinullar þakeiningar og límtrésbitum.

Gluggar og útihurðir:  Allir gluggar eru verksmiðjuframleiddir úr PVC og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Útihurðar eru úr PVC. Gluggar ná ekki niður fyrir 60 sm. og krafa um öryggisgler á ekki við.

Loftræsting: Húsið er loftað með náttúrulegri loftræstingu opnun glugga og hurða. 

Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is  asberg@asberg.is 

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837,
Jón Gunnar Jónsson  sími 849-3073, asberg@asberg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/10/202511.400.000 kr.24.900.000 kr.56.6 m2439.929 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njarðarbraut 5
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Njarðarbraut 5
260 Reykjanesbær
56.6 m2
Atvinnuhúsn.
1
440 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Njarðarbraut 5
260 Reykjanesbær
56.6 m2
Atvinnuhúsn.
440 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Njarðarbraut 5
260 Reykjanesbær
56.6 m2
Atvinnuhúsn.
440 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Njarðarbraut 5
260 Reykjanesbær
56.6 m2
Atvinnuhúsn.
1
440 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin