Fasteignaleitin
Skráð 14. ágúst 2026

Skaftahlíð 1

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
254.9 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
197.000.000 kr.
Fermetraverð
772.852 kr./m2
Brunabótamat
116.550.000 kr.
Byggt 1948
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20134393
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Tveir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Einstaklega fallegt og vel skipulagt parhús á þremur hæðum við Skaftahlíð. Falleg hönnun og ólík flestum húsum í hverfinu. Góðir garðar framan og aftan við húsið. Gengið er beint frá stofu út í fallegan, skjólgóðan og afgirtan garð sem snýr í suður. Stórar stofur, eldhús og gestasalerni eru á miðhæð. Fjögur svefnherbergi á efri hæð. Lítil íbúð í kjallara með sérinngangi. Nýlegt þak, nýlegt frárennsli og dren, og flestir gluggar nýlegir.

Arkitekt hússins er Hannes Kr. Davíðsson sem einnig teiknaði Kjarvalsstaði. Fyrsti landslagsarkitekt Íslands, Jón H. Björnsson (Jón í Alaska), hannaði garðinn. Húsið var sett í rauða hverfisvernd (ytra útlit) í Hverfisskipulagi Hlíða 2024 vegna byggingarsögulegs gildis. Saga og sérstaða hússins og garðsins hefur verið skráð á bók.

Eignin er skráð 254,9 fm - þar af er opið bílskýli vestan við húsið skráð 21 fm. 

Nánari lýsing:
Forstofa á miðhæð: Flísar á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Ljósbrún viðarinnrétting, vínilflísar á gólfi, borðkrókur og gluggar í tvær áttir. 
Borðstofa: Á efri palli, opin við setustofuna. Parket er á gólfi og gluggar.
Setustofa: Gengið niður þrjú þrep í setustofuna sem er mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum og aukinni lofthæð (um 3,2 m). Parket er á gólfi. Gengið er beint út í garðinn til suðurs. Garðurinn er steyptur að hluta og með hellulögn að hluta.
Gestasalerni: Við forstofu, flísar eru á veggjum og gólfi og gluggi.

Gengið upp steyptan og parketlagðan stiga upp á efri hæð hússins.
Hol tengir saman rými hæðarinnar, parket er á gólfi og þakgluggi sem gefur góða birtu.
Herbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, dúkur á gólfi og innbyggðir fataskápar. Gengið er frá herberginu út á suður svalir, nýleg hurð.
Herbergi 2: Mjög rúmgott herbergi, dúkur á gólfi og fataskápar.
Herbergi 3: Gott herbergi, dúkur á gólfi og innbyggður skápur.
Herbergi 4: Gott herbergi, korkflísar á gólfi og nýleg tvöföld hurð út á suður svalir.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, baðker, sturtuklefi og gluggi er á herberginu. Fyrir framan baðherbergi er lítið hol og geymsla inn af holinu.

Úr holi miðhæðar er gengið um steyptan stiga með sísalteppi niður í kjallara hússins. Einnig er sérinngangur í kjallara íbúð á vesturhlið hússins.
Þvottahús: Stórt þvottahús með flísum á gólfi. Fyrir framan þvottahús er hol með innréttingum.
Herbergi/Geymsla: Á móti þvottahúsi er nokkuð rúmgott rými/herbergi með korkparketi á gólfi og fallegum gluggum sem snúa upp í garðinn. Inn af herberginu er geymsla.
Auka íbúð: Í hluta kjallarans er séríbúð með sérinngang. Gengið er inn á flísalagt anddyri. Eldhúsið er flísalagt. Viðarinnrétting og borðkrókur við glugga. Inn af eldhúsi er flísalagt baðherbergi með sturtu. Eitt herbergi er í íbúðinni, mjög rúmgott og með glugga. Plastparket er á gólfi. Hægt er að ganga úr íbúðinni í þvottahúsið sem væri þá sameiginlegt með aðalíbúð. Einnig er hægt að hafa lokað á milli.
Vestan við húsið er innkeyrsla, yfirbyggt og opið bílskýli.

Endurbætur / viðhald
2025: Dren allt yfirfarið við norður-, austur- og vesturhliðar hússins og endurnýjað að hluta. 
2024: Þakjárn og þakpappi endurnýjað og timburklæðning að hluta, þakrennur endurnýjaðar og settur í þær hiti.
2018: Rafmagnsinntak uppfært í 3ja fasa 400 volt.
2016 og 2017: Gluggar endurnýjaðir á efri og miðhæð og sett öryggisgler í þakglugga.
2010 Skjólveggir við suðurgarð endurnýjaðir og reist pergóla (laufskáli).
2003: Frárennslislagnir endurnýjaðar undir húsi og út í brunn.

Fallegt og vel staðsett hús - stutt í skóla og alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina. Klambratún í allra næsta nágrenni, þar er stórt útivistarsvæði ásamt Kjarvalsstöðum og kaffihúsi.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Fossvogsvegur 26
108 Reykjavík
242 m2
Fjölbýlishús
524
1384 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Fossvogsvegur 18
108 Reykjavík
241.8 m2
Fjölbýlishús
523
1385 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Fossvogsvegur 10
108 Reykjavík
233.5 m2
Fjölbýlishús
523
1435 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Ljósvallagata 30
Kjallaraíbúð
Opið hús:20. ágúst kl 17:30-18:00
Ljósvallagata 30
101 Reykjavík
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin