Fléttuvellir 35, 221 Hafnarfjörður er afar glæsilegt 4-5 herbergja steinsteypt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið er byggt árið 2006 og er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði. Eignin er með rúmgóðum sólpalli til suðvesturs og heitum potti. Um að ræða 229,0 fermetra eign sem skiptist í 191,2 fermetra íbúðarrými og 37,8 fermetra bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stóra stofu, borðstofu, þvottahús, bílskúr og geymslu.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 229,0 fm, þar af er bílskúr 37,8 fm | Fasteignamat 2023 er 120.600.000,-
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu/gang með stórum fataskáp og flísum á gólfi. Frá forstofu er gengið inn í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Eldhús: Opið inn í miðrými hússins. Hvít sérsmíðuð innrétting og svartar flísar á milli skápa. Tveir bakaraofnar í vinnuhæð og vönduð Siemens kaffivél. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi út á sólpall til suðvesturs.
Hjónasvíta: Rúmgóð með góðum fataskáp og parket á gólfi. Innangengt á baðherbergi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi I: Með upphengdu salerni og sturtu. Flísar í hólf og gólf.
Baðherbergi II: Innangengt frá hjónasvítu. Með uppphengdu salerni, baðkari og sturtu. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús: Rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss og vinnuvaskur. Flísar á gólfi.
Geymsla: Inn af bílskúr.
Bílskúr: Stór og rúmgóður. Innangengt frá þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Bílaplan: Stórt hellulagt bílaplan.
Lóðin: 664,0 fm lóð.
Einstaklega skemmtileg eign á rólegum og góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu, verlsanir og iðandi íþróttalíf. Þá er stutt í heillandi göngu og hjólasvæði við Ástjörn og Hvaleyravatn.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.500 kr. fyrir hvert skjal.
Kynntu þér
fasteignaþjónustu Procura og
nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.