Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

ParhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
162 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
66.100.000 kr.
Fermetraverð
408.025 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Pallur
Bílastæði
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
100121026
Landnúmer
0
Húsgerð
Parhús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd út frá stofu
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT PARHÚS Á EINNI HÆÐ Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM* *FRÁBÆR KAUP* 


Vandað og fallegt hús á einni hæð á frábærum stað í lokuðum botlanga í Encina hverfinu á Las Colinas golfvellinum. Fallegt gróið umhverfi, mjög prívat staðsetning þar sem hægt er að njóta lífsins í ró og næði. Stór einkagarður og aðgangur að góðum sameiginlegum sundlaugargarði, sem er sameiginlegur með nokkrum húsum í kring. Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandað og gott hús á þessum vinsæla stað á frábæru verði. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.

Einstakt gróið umhverfi, með allt það besta sem Las Colinas hefur upp á að bjóða rétt við þröskuldinn.  Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869. 


Nánari lýsing:
Gott skipulag, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Stór sólverönd framan við húsið sem hægt er að opna vel út í garðinn, sem snýr í suður. Frábær sólbaðsaðstaða bæði í garðinum og í notalegum sameiginlegum sundlaugargarði. Gott flæði er í húsinu. Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Útgengi út i bakgarð frá eldhúsinu. Þrjú svefnherbergi og tvö  baðherbergi og er annað baðherbergið tengt master svefnherberginu. Þaðan er útgengi út í garð. Húsið er mjög prívat og vel staðsett í fallegu grónu umhverfi. Garðurinn er stór og hægt að setja einkasundlaug. Sér bílastæði inni á lokaðri lóð. Möguleiki á miðstöðvarkyndingu.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Húsið er í endursölu, en er í ágætu ástandi og selst með húsgögnum og húsbúnaði.

Verð 479.000 evrur + kostn. við kaupin.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con,  golf, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100121026

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tröllakór 2-4
3D Sýn
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Tröllakór 2-4
Tröllakór 2-4
203 Kópavogur
159,8 m2
Fjölbýlishús
413
688 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Karlsbraut 20 efri hæð
Bílskúr
Efsta hæð
Karlsbraut 20 efri hæð
620 Dalvík
145,9 m2
Fjölbýlishús
312
264 þ.kr./m2
38.500.000 kr.
Skoða eignina Langalína 24
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Langalína 24
Langalína 24
210 Garðabær
130,1 m2
Fjölbýlishús
322
1075 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 602
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 602
105 Reykjavík
140,7 m2
Fjölbýlishús
423
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin