BYR fasteignasala kynnir MÁNAMÖRK 1, í einkasölu. Björt tveggja herbergja búð á efri hæð í fjölbýlishúsi í hjarta bæjarins, kjörin fyrsta eign. Ýtið hér fyrir staðsetningu.
EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR FLJÓTLEGA. Vel skipulögð og björt eign á vinsælum stað í Hveragerði, mjög góð staðsetning stutt í alla almenna þjónustu, Skipulag: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, eitt svefnherbergi, baðherbergi, geymsla (hefur verið nýtt sem svefnherbergi) og svalir.
Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:Stærð: Íbúð 72,8 m².
Brunabótamat: 34.550.000 kr.
Fasteignamat: 34.250.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2023: 43.650.000 kr.
Byggingarár: 2018
Byggingarefni: Steypt+timbur
Nánari lýsing:Forstofa, með fatahengi og skáp.
Alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Útgengt er á
svalir til suðurs frá stofu.
Svalirnar liggja meðfram allri suðurhlið íbúðarinnar, timburgólf og gott útsýni yfir Ölfusið.
Eldhús er með nýlegri innréttingu og tækjum, AEG keramikhelluborð, AEG ofn, háfur og stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturta, vegghengdu salerni og vaskinnrétting, handklæðaofn. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla 9,5m² er innan íbúðar. Geymslan er með glugga og hefur verið nýtt sem
svefnherbergi.Gólfefni: Harðparket er á allri eigninni nema baðherbergi, þar eru flísar. Innbyggð lýsing er í stofu og eldhúsi.
Sameign, komið er inn í sameign með flísum á gólfi, þar eru póstkassar. Teppalagður stigi liggur upp á aðra hæð, einnig er lyfta.
Frá stigapalli við lyftu er gengið inn gang að íbúðinni, vínylparket á gólfi.
Húsið er byggt árið 2018, níu íbúðir eru á efri hæð, verslunar og þjónusturými eru á neðri hæð. Fyrsta hæð hússins og lyftuhús eru steinsteypt, einangrað og klætt að utan. Önnur hæð er úr timbri, klædd með báraðri málmklæðningu.
Bílastæði og lóð eru frágengin og malbikuð í sameign. 23 bílastæði eru á lóðinni þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. Fimm hitaveitumælar eru í húsinu, rafmagnsmælar eru fyrir hverja eign fyrir sig.
Húsfélag er starfandi í eigninni.