Árni B.Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Eskivelli 7, 221 Hafnarfirði, nánar tiltekið eign merkt 02-04, fastanúmer 227-4245 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin er samkvæmt HMS. 79.5 fm.
Vel staðsett þriggja herbergja íbúð, á annari hæð í lyftuhúsi. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og samliggjandi stofu og eldhús. Útgengt er út úr stofunni á svalir með svalalokun. Stutt er í matvöruverslun, bara hinu megin við götuna og fleiri verslanir og þjónusta í næsta nágreni.
3ja herbergja íbúð á 2. hæð góðu fjölbýli með suður/vestur svölum.
Sérþvottaherbergi og stórar svalir með glerlokun.
Nánari lýsing:Anddyri: rúmgott með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi
Eldhús: rúmgott með með góðu skápaplássi. Eldhús er í opnu rými við stofu.
Stofa: björt í opnu rými tengt eldhúsi og útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: rúmgott með góðu skápaplássi. Skápar ná til lofts. Parket á gólfum
Herbergi: rúmgott með parketi á gólfi og skáp.
Baðherbergi: flísalagt gólf og veggir, snyrtileg innrétting,salerni og sturta
Þvottaherbergi: flísar á gólfi, vinnuborði með vask og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: í kjallara.
Parket á öllum gólfum, nema votrými sem eru flísalögð ásamt anddyri.
Snyrtileg sameign.
Engar yfirstandandi framkvæmdir. Staða hússjóðs og framkvæmdasjóðs góð.
Nánari upplýsingar veita:Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.isUm er að ræða dánarbú og er ástand eignarinnar ekki þekkt fyrir utan það sem kemur fram í söluyfirliti og opinberum gögnum. Væntanlegum kaupendum er bent á að skoða eignina með það í huga og leita sér aðstoðar sérfræðinga um nánari skoðun ef þeir telja tilefni til þess.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.