Asparholt 2, 225 Garðabær er rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 2004. Um er að ræða 116,8 fermetra eign sem skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, opið eldhús, stofu/borðstofu og geymslu innan íbúðar. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 116,8 fm | Fasteignamat 2023 er kr. 64.100.000,-
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Innangengt í geymslu.
Eldhús: Opið eldhús með ljósri innréttingu og góðum tækjum. Flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á svalir til norðvesturs. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi: Með upphengdu salerni, baðkari og sturtu. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús: Innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Svalir: Góðar 8,4 fm svalir sem snúa í norðvestur.
Geymsla: Rúmgóð geymsla innan íbúðar.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign.
Eignin er staðsett á góðum og fjölskylduvænum stað á Álftanesinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttastarf.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.500 kr. fyrir hvert skjal. Kynntu þér
fasteignaþjónustu Procura og
nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.