Betri Stofan fasteignasala kynna nýja glæsilega íbúð við Breiðhöfða 15:Góð þriggja til fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í nýju fjölbýlishúsi á Höfðanum. Eignin er með einstaklega fallegum innréttingum og skilast fullbúin með gólfefnum samkvæmt skilalýsingu seljanda. Íbúð 204 er skráð 100,1 fm þar af 12,8 fm geymsla.
Hverfið er skipulagt með það að leiðarljósi að öll helsta þjónusta sé í göngufæri. Þá tengist það helstu samgönguæðum borgarinnar. Stutt er í græn svæði, göngu- og hjólastíga auk þess sem almenningssamgöngur verða öflugar með fyrirhugaðri borgarlínu. Borgarhöfðinn býður upp á líflegt borgarumhverfi þar sem þægindi, gæði og framtíðarsýn fara saman.
Sjá nánar heimasíðu verkefnisins HÉRNánari lýsing á íbúð 204:Anddyri með fínu skápaplássi
Alrými sem er rúmgott og sameinar stofu, borðstofu og eldhús
Svefnherbergi I er rúmgott með miklu skápaplássi
Svefnherbergi II er með skápum
Baðherbergi sem er flísalagt. Það er með fallegri innréttingu og walk-in sturtu.
Þvottaaðstaða á baðherberginu.
Tvennar svalir norðursvalir 4,0fm suðursvalir 9,2fm
Skuggi byggir 50 nýjar íbúðir þar sem gæði og góður frágángur skína í gegn. Afhending íbúðar - haust 2026.Nánari upplýsingar veita:Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Telma Rut Frímannsdóttir í síma 772-3555, tölvupóstur telma@betristofan.is