Fasteignaleitin
Skráð 25. ágúst 2025

Trilluvogur 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
184.9 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
702.542 kr./m2
Fasteignamat
126.400.000 kr.
Brunabótamat
115.830.000 kr.
Mynd af Elín Viðarsdóttir
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2502912
Landnúmer
225188
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu; Trilluvog 7, 104 Reykjavík. 
Um er að ræða nýlegt, fallegt og vel skipulagt 6 herbergja raðhús á þremur hæðum með 2 stæðum í lokaðri bílageymslu í  hinum nýja Vogahverfi Reykjavíkur.
Sérinngangur er bæði á fyrstu og aðra hæð hússins. MÖGULEG SKIPTI Á MINNI EIGN á höfuðborgarsvæðinu.


- Byggingaár hússins er 2019
- 2024/2025 húsið klætt og lokun gerð á bílgeymslu.

- Eignin er skráð skv. HMS 180,7 fm. auk tveggja óskráðra einkabílastæða með hleðslustöð, í lokaðri bílageymslu.
- Íbúðarhæðirnar skiptast þannig; 58,4 fm, 61,2 fm og 54,6 fm auk geymslu 6,5 fm. 

- Útleigumöguleiki á fyrstu hæð - sérinngangur
- Svalir (6,6 fm.) af annari hæð og sérafnotareitur sem snýr að lokuðum sameigninlegum garði á annari hæð.
- Þrjú baðherbergi eru í húsinu, á öllum hæðum þess, tvö með "walk in" sturtu og eitt með baðkari.
- Þrjú svefnherbergi eru skv. teikningu auk sjónvarpsrýmis sem búið er að loka og er því fjórða svefnherbergið í dag (fyrir utan aukaíbúð).


Raðhúsið skiptist í: 2 Forstofur, hol, eldhús/borðstofu, stofu, 3 baðherbergi, 5 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, þvottahús, geymslu og bílskýli.
Nánari lýsing; Frá götu 1. hæðar er inngangur inn á neðstu hæð eignarinnar og inn í aukaíbúðina. Úr sameiginlegum garði nærliggjandi eigna er aðalinngangur á efri tvær íbúðarhæðirnar.
1. hæð frá götu: Forstofa er flísalögð með fjórföldum fataskáp.  Af forstofunni er annars vegar gengið inn í aukaíbúðina sem skiptist í eldhús/stofu, baðherbergi og svefnherbergi. Eldhús/stofa er með parket á gólfi og skápum. Baðherbergið er flísalagt með innréttingu og walk-in sturtu. Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Inn af anddyrinu er svo hins vegar gengið inn í rúmgott þvottahús, en þaðan er hurð út í bílskýlið. Þægilegur teppalagður stigi er úr forstofu 1.hæðar inn á hol 2.hæðar.
2. hæð, gengið inn úr garði: Forstofan er flísalögð með fataskápum. Inn af forstofunni er eldhús/borðastofa með fallegri og sérlega rúmgóðri innréttingu og parketi á gólfi.  Þaðan er útgengt á sérafnotareit sem snýr til suðurs. Stofan er björt með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni og walk-in sturtu. Gengið er upp þægilegan parketlagðan steyptan stiga upp á 3. og efstu hæð raðhússins.
3. hæð:  Komið er inn á hol. Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskáp. Þar er búið að loka sjónvarpsholi með léttum vegg til að fá 4.svefnherbergið, með parketi á gólfi og útgengt er á suðursvalir. Hægt að breyta til fyrra horfs.  Baðherbergi er á hæðinni með fallegri innréttingu, handklæðaofni og baðkari.

Sérgeymsla íbúðarinnar er í sameign ásamt sameiginlegum rýmum.  
Bílageymslan: Er innangegn í húsinu. Stæðin eru 2 skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgja bílastæði í bílageymslu merkt B37 og B38 eigninni.
Sameignleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1.hæð.
Fasteignamat 2025 er 116.800.000.- en verður 130.850.000.- f. árið 2026

Samantekt: Mjög vel skipulagt raðhús á 3 hæðum sem hefur möguleika á 4 rúmgóðum svefnherbergjum og aukaíbúð. 2 stæði í lokaðri innangengri bílageymslu fylgir eigninni.

Göngufæri er í grunn- og framhaldsskóla. Örstutt er út í óspillta náttúruna. Stutt er að sækja alla helstu þjónustu með auðveldu aðgengi að helstu samgönguæðum og í göngufæri við ein af fallegustu útivistarsvæðum borgarinnar.
Með tilkomu nýrrar göngubrúar yfir Sundabrautina verður til ný göngu- og hjólaleið milli Tranavogs og Snekkjuvogs. Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.

Allar nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is  Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/10/202075.400.000 kr.87.900.000 kr.180.7 m2486.441 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2502912
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.280.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
114.8 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
870 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 505 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 37, íb. 505 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
89.2 m2
Fjölbýlishús
312
830 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, Íb. 309
Opið hús:14. mars kl 14:00-14:30
Hringhamar 35, Íb. 309
221 Hafnarfjörður
98 m2
Fjölbýlishús
312
755 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin