Eiríksgata 10 – Álftavatn, Grímsnes- og Grafningshreppur Um er að ræða glæsilega bakkalóð 8.397,8 fm að stærð. Lóðin er eignarlóð þar sem búið verður að jarðvegsskipta fyrir fyrirhugað sumarhús. Lóðin er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað þar sem náttúrufegurð, friðsæld og útivist fara saman. Frá lóðinni er stórbrotið útsýni yfir Álftavatn og nærliggjandi sveitir.
Lóðin býður upp á einstakt tækifæri til að byggja glæsilegt sumarhús eða heilsárshús í fallegu umhverfi þar sem stutt er í fjölbreytta afþreyingu og þjónustu. Svæðið er þekkt fyrir fallega náttúru, góðar gönguleiðir, veiði, golf og fjölmarga aðra afþreyingarkosti. Aðeins er um klukkustundarakstur frá Reykjavík.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er nýtingarhlutfall lóðarinnar 0,05. Heimilt er að reisa einlyft hús, en einnig er heimilt að vera með kjallara eða svefnloft/rishæð ef aðstæður leyfa. Þakform er frjálst og hámarkshæð bygginga er 6,5 metrar.
Mögulegt er að kaupa samhliða teikningar af glæsilegu sumarhúsi sem hannað hefur verið sérstaklega fyrir lóðina, sem getur flýtt verulega fyrir undirbúningi framkvæmda.
Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að reka gistingu í flokki I og II, sem veitir eigendum aukna möguleika á nýtingu eignarinnar.
Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast fallega vatnsbakkalóð á einum eftirsóttasta sumarhúsastað landsins þar sem kyrrð, náttúrufegurð og fjölbreytt útivist eru í fyrirrúmi.
8,397.8 m2
Fasteignanúmer
2535544
Landnúmer
238244
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.