Fasteignaleitin
Skráð 20. mars 2026

Helluvað 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
101.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
885.714 kr./m2
Fasteignamat
81.000.000 kr.
Brunabótamat
62.590.000 kr.
SS
Sunna Sigurjónsdóttir
Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2282960
Landnúmer
199077
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir*
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja penthouse íbúð  með stæði í bílageymslu í Helluvaði 19, 110 Reykjavík. Eignin er samtals 101,5 fm, vel skipulögð og telur tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í björtu opnu alrými, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, geymslu, stæði í bílageymslu og sameiginlega hjóla- og vagnageymslu. Stórar svalir til suðurs.  

Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Forstofa: Snyrtileg forstofa með fataskáp sem nær upp í loft.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskáp sem nær upp í loft. Dökkbrúnar veggþiljur á einum vegg. Nýlegt og fallegt viðarlitað Quick step harðparket á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa: Bjart og fallegt alrými. Nýlegt eldhús með viðarlitaðri innréttingu, eldhúseyju, og vinnsluskáp. Uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Nýlegt og fallegt viðarlitað Quick step harðparket á gólfi. Stórir gluggar yfir allt alrýmið og útgengt á 28,6 fm suðursvalir með stórkostlegu útsýni yfir Heiðmörk og Bláfjöll. Tengi fyrir rafmagnspott á svölum. Heit og kalt vatn á svölum og útitenglar.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp sem nær upp í loft. Dökkbrúnar veggþiljur á einum vegg. Nýlegt og fallegt viðarlitað Quick step harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg viðarlituð innrétting, speglaskápur, walk in sturta og uppengt WC. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og inni í sturtu. 
Geymsla: Sér 11,4 fm geymsla í sameign. Geymslan er inni í fm tölu eignarinnar. 
Bílastæði: Stórt bílastæði við inngang að lyftu. Hleðslustöð við stæði en ON á hana eins og aðrar stöðvar í húsinu.
Sameign: Sameign er öll sú snyrtilegasta. Lyfta og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Endurbætur sem hafa átt sér stað á síðustu þremur árum að sögn seljanda:
Eldhús: Nýtt eldhús og tæki, sérsmíðaðar innréttingar, nýjar raflagnir í eldhúsi og eldhúseyju.
Stofa/borðstofa: Nýjir ofnar og skipt um gler í opnanlegum fögum*. 
Baðherbergi: Sérsmíðaðar innréttingar (neðri partur), speglaskápur, walk inn sturta sett  í stað baðkars, innrétting undir þvottavél og þurrkara. Flísalagt og múrað með lituðu microsementi.Tekið inn fyrir hillu sem var flísalögð og sett led ljós í. Gólf með rafmagnshita.
Geymsla: Búið að leggja fyrir tengli fyrir auka ísskáp og frystikistu.
Svalir: Lagt rafmagn fyrir heitum potti (athuga ber að pottur fylgir ekki með í kaupum þessum).
-Skipt um öll gólfefni á allri íbúðinni og nýjar hurðar innan íbúðar.
-Skipt um skápahurðar í forstofu og svefnherbergjum. Ofnar í svefnherbergjum voru sprautulakkaðir svartir og skipt um krana.
-Skipt var um alla tengla, rofa og dimmera. Gira efni. Skipt um dyrasíma.
-Rafmagnstafla yfirfarin. 

-Húsfélagið hefur samþykkt að skipta um lyftu en seljandi mun greiða kostnað vegna þessa.

Glæsileg og nýuppgerð eign á vinsælum stað í Norðlingaholtinu þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og helstu þjónustu. Fallegar nátturúperlur eins og t.d. Heiðmörk, Elliðavatn og Rauðavatn eru í göngufæri.  

*Vakin er athygli á að eigandi fasteignarinnar fellur undir lagaákvæði er snýr að tengslum við fasteignasala skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015, lög um sölu fasteigna og skipa.*


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/02/202147.500.000 kr.51.900.000 kr.101.5 m2511.330 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2007
Fasteignanúmer
2282960
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B6
Númer eignar
3
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.790.000 kr.

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Fossvogsvegur 10
108 Reykjavík
233.5 m2
Fjölbýlishús
413
1435 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Dvergaholt 9 íbúð 211
Bílastæði
Dvergaholt 9 íbúð 211
603 Akureyri
76.7 m2
Fjölbýlishús
312
897 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 23 201
Brekkugata 23 201
600 Akureyri
108.1 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
412
720 þ.kr./m2
77.800.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 203
Suðurhella 16 íb. 203
221 Hafnarfjörður
75.4 m2
Fjölbýlishús
211
794 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin