Falleg og björt 2ja herbergja íbúð með suðursvölum við Víðivang í HafnarfirðiFalleg og björt tveggja herbergja íbúð í litlu fjölbýlishúsi við Víðivang í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
Íbúðin er vel skipulögð, með björtu alrými, nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu og skjólgóðum svölum sem snúa til suðurs.
Heildarstærð eignarinnar er
62,4 m², þar af er sérgeymsla
4,4 m².Nánari lýsingForstofa og hol: Parket á gólfi og fataskápur.
Stofa og eldhús: Bjart og opið alrými með parketi á gólfi.
Eldhúsið er með nýlegri hvítri innréttingu, aðstöðu fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Útgengt er á sérverönd sem snýr til suðvesturs.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, lítilli baðinnréttingu og þvottaaðstöðu.
Geymsla: Sérgeymsla á geymslugangi, 4,4 m² að stærð.
Sameiginleg rými: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt þurrkherbergi.
Stigagangur er snyrtilegur og lóðin ræktuð og frágengin.
Helstu framkvæmdir á undanförnum árumSamkvæmt seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar á húsinu:
- 2026: Húsið múrviðgert og málað.
- 2023: Hleðslustöð sett upp.
- 2022: Þak viðgert og skipt um þakjárn og pappa.
- 2018: Skipt um þakkanta, rennur og rúður.
Staðsetning og nærumhverfiEignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
Stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir og aðra helstu þjónustu.
Víðistaðatún er í næsta nágrenni og býður upp á fallegt útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is