Til leigu vandað 325 m² skrifstofuhúsnæði á neðri jarðhæð við Hlíðasmára 1 í Kópavogi. Laust strax.
Húsnæðið er sett upp sem skrifstofuhúsnæði í dag og skiptist í opið vinnurými, fundarherbergi, þrjár skrifstofur, kaffistofu og tvö salerni.
Innst í húsnæðinu er léttur veggur sem stúkar af geymslurými, en auðvelt er að taka vegginn niður og stækka þannig opna skrifstofuhlutann.
Parket á gólfi og kerfisloft með innfelldri lýsingu.
Sér inngangur er í rýmið beint inn af bílastæði og er hann með vindfangi. Einnig er til staðar vörudyr.
Virðisaukaskattur leggst ekki við leigufjárhæð.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.