Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 kynnir Köldukinn 25, 3- 4 herbergja bjarta neðri sérhæð sem snýr í suður.
Umrædd eign er skv. fasteignayfirliti HMS skráð 93,1 m2. Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2027 er kr. 72.750.000,-
Eignin hefur nýlega hlotið töluvert viðhald að innan, en hún hefur verið máluð, nýjar innihurðar settar upp í barna- og hjónaherbergi, fataskápar settir upp í báðum herbergjum og gengið frá öllum parketlistum og frágangur kláraður í nýlegri eldhúsinnréttingu.
*** Laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings***
Eignin hefur sér inngang en gengið er niður nokkrar tröppur að stétt og útidyrahurð en hún skiptist í:
Forstofu, hol, rúmgóða stofu(þar sem möguleiki er á 3 svefnherberginu út úr borðstofu), eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg geymsla. Köld útigeymsla fylgir staðsett undir stiga.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: flísar á gólfi við inngang með fatahengi og parket á gólfum.
Hol: parket á gólfi.
Eldhús: með nýlegri svartri eldhúsinnréttingu, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, gott vinnupláss, parket á gólfi.
Stofa & borðstofa: rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum. Viðarlituð innrétting með handlaug, upphengt WC og sturtuklefi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergi: bjart herbergi með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Svefnherbergi 2: rúmgott með harðparketi á gólfi og nýlegum fataskáp.
Þvottahús: sameiginlegt þvottahús, með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt frá þvottahúsi út í sameiginlegan bakgarð sem hefur mikla nýtingarmöguleika.
Geymsla: köld geymsla fylgir íbúðinni staðsett undir stiga og sér geymsla inn af þvottahúsi, en einnig er í kjallara sameiginleg geymsla og lagnarými sem í dag er opið rými og skiptist jafnt á milli hæða.
Kaldakinn 25 er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað í suðurbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða gróið og fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki og alla helstu þjónustu. Miðbær Hafnarfjarðar, Tjörnin og falleg útivistarsvæði eru í þægilegu göngufæri. Góðar samgöngur og greiður aðgangur að helstu stofnbrautum tryggja þægilegt aðgengi að öðrum hverfum bæjarins og höfuðborgarsvæðisins.
Nýlega er búið að pússa og mála glugga að innan, klára frágang í eldhúsi og málningarvinnu, setja upp fataskáp í barnaherbergi, skipta um tvær innihurðir og ganga frá gólflistum. Eignin getur verið laus við undirritun kaupsamnings.
Nánari upplýsingar veita: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.