Fasteignaleitin
Skráð 10. mars 2026

Vættaborgir 84

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
158.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
738.005 kr./m2
Fasteignamat
107.300.000 kr.
Brunabótamat
81.040.000 kr.
Mynd af Hrafnkell Pálmarsson
Hrafnkell Pálmarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2262486
Landnúmer
175881
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir og pallur
Upphitun
Hitaveita - sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
2022 var opnað á milli bílskúrs og anddyris íbúðar og sett upp eldvarnarhurð. Ekki liggur fyrir byggingaleyfi fyrir framkvæmd þessari og er kaupandi hvattur til þess að kynna sér málið eða óska eftir upplýsingum hvað það varðar.
Kvöð / kvaðir
411-A-020070/2001 - 3339 FM LEIGULÓÐ TIL 75 ÁRA FRÁ 01.01.2001. ALMENN KVÖÐ UM HVERS KONAR LAGNIR BORGARSJÓÐS OG STOFNANA HANS OG SKILMÁLA BORGARVERKFRÆÐINGS.--LÓÐ SAMEIGINLEG FYRIR VÆTTABORGIR 84-96
Afar björt og rúmgóð 4 herbergja efri sérhæð með bílskúr í tvíbýli á eftirsóttum stað í Grafarvoginum. Tvennar svalir til suðurs og norðurs og er fallegt útsýni til norðurs út á sjó og yfir Esjuna.

** 3 rúmgóð svefnherbergi
** Mikil lofthæð
** Glæsilegt útsýni 
** Tvennar svalir
** Sér pallur 


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 158,4m2, þar af bílskúr 22,8m2.

Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymsluloft, geymslu og bílskúr. 

Nánari lýsing:
Inngangur í húsið er sameiginlegur með íbúð á neðri hæð.
Anddyri er með góðum fataskápum. Flísar á gólfi.
Stigi er upp úr forstofunni og þar er komið í bjart og opið miðrými sem tengir saman eldhús, borðstofu og stofu sem eru með mikilli lofthæð.
Eldhúsið er með góðri mahogny eldhúsinnréttingu með flísum á milli skápa, bakaraofn, span helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Borðstofan er björt með gólfsíðum hornglugga sem vísar til suðurs og vesturs. Flísar á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með gluggum til suðurs og vesturs. Parket á gólfi. Útgengt er á suður svalir þar sem gengið er út í garðinn á rúmgóðan pall sem tilheyrir eigninni.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll rúmgóð, með góðu skápaplássi. Parketi á gólfi.
Baðherbergið er með viðarinnréttingu, handlaug, salerni, sturtuklefa og baðkari. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahúsið er með veggföstum hillum og góðum þvottasnúrum. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi. Geymsluloft er yfir þvottahúsi og baðherbergi og er fellistigi í þvottahúsinu.
Bílskúrinn er 22,8m2 með flísum á gólfi, heitu og köldu vatni og rafmagnsopnara á bílskúrshurð. Sérinngangshurð er á hliðin hússins. Inn af bílskúrnum er geymsla sem er 7,4m2 með veggföstum hillum.
Hitalögn er í plani og er kerfið með innspýtingu.

Framkvæmdir síðustu ár:
2020 Parket slípað og lakkað
2021 Handklæðaofnar settir upp í forstofu og bílskúr
2022 Hurð sett úr íbúð í bílskúr
2023 Nýtt grindverk milli garða
2023 Nýr Siemens blástursofn í eldhús
2024 Ný innrétting og blöndunartæki á bað ásamt handklæðaofni
2025 Pallur og grindverk olíuborin
2025 Nýr geymsluskúr settur upp á pallinn 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/01/202060.600.000 kr.67.900.000 kr.158.4 m2428.661 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2002
22.8 m2
Fasteignanúmer
2262486
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.040.000 kr.

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata 6
Bílastæði
Skoða eignina Úugata 6
Úugata 6
270 Mosfellsbær
162.6 m2
Fjölbýlishús
44
787 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 6
Bílastæði
Skoða eignina Úugata 6
Úugata 6
270 Mosfellsbær
100.9 m2
Fjölbýlishús
312
860 þ.kr./m2
86.800.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (502)
áshamar jpg.jpg
Áshamar 56 (502)
221 Hafnarfjörður
129.5 m2
Fjölbýlishús
313
761 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Vinastræti 6
Bílastæði
Skoða eignina Vinastræti 6
Vinastræti 6
210 Garðabær
144.1 m2
Fjölbýlishús
423
1093 þ.kr./m2
157.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin