RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Kleppsveg 38, íbúð 0202 fnr. 201-6279Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 102,8 fm og þar af eru tvær geymslur í kjallara sem eru samtals 8,5 fm. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Íbúðin er á 2. hæð í fjögurra hæða húsi. Húsið er byggt árið 1956. Sjá nánar hér að neðan upptöku af íbúðinni í þrívídd. Einnig er gott að sjá skipulag íbúðar á gólfteikningu þar sem ljósmyndir af eigninni eru.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3D -FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Bílastæði eru fyrir framan húsið. Gengið er inn í sameiginlegan inngang og er teppalagður stigi upp að íbúðinni sem er á 2. hæð. Eldvarnarhurð er inn í íbúðina.
Forstofa: Parket á gólfi. Gott fatahengi.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús: Parket á gólfi. Hvít falleg innrétting. Spansuðuhelluborð með viftu yfir. Bakaraofn. Uppþvottavél og kæli/frystiskápur innbyggð í innréttingu og fylgja með í kaupum.
Svefnherbergi: Eru þrjú og er parket á gólfi þeirra allra. Fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Upphengt salerni. Innrétting með handlaug. Handklæðaofn. Búið að leggja fyrir þvottavél á baðherbergi og eru núverandi eigendur með þvottavél þar. Einnig er sameiginlegt þvottahús í sameign.
Geymslur: Eru tvær og önnur þeirra skráð 6 fm og hin 2,5fm. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er einnig í kjallara og svo er frystiklefi þar sem hver eigandi hefur sitt lokaða rými.
Lóð: Sameiginleg frágengin og gróin lóð sem snýr í suður og veitir húsið gott skjól fyrir norðanátt.
Kleppsvegur 38 er virkilega falleg og björt íbúð með þremur svefnherbergjum. Núverandi eigendur tóku íbúðina í gegn þegar þau keyptu árið 2019. Stutt í þjónustu sen og skóla og leikskóla. Einnig stutt í Laugardalinn með allri hans fegurð og þjónustu þar. - Eldhús var fært og og myndar nú eina heild með stofu/borðstofu.
- Ný rafmagnstafla var sett í eldhús.
- Allar neysluvatnslagnir lagðar nýjar í eldhúsi.
- Sett nýtt parket á íbúðina.
- Skipt um allar innihurðir.
- Baðherbergi allt tekið í gegn og nýjar lagnir og rafmagn í rýminu.
- Allt annað í rafmagni íbúðar var yfirfarið.
Endurbætur síðustu ára á húsi:- Frárennsli/skólp endurnýjað árið 2020, settur nýr brunnur og drenað í kringum vesturgaflinn.
- Vatnslagnir í sameign í kjallara endurnýjaðar 2020.
- Stigagangur teppalagður og málaður árið 2019 og eldvarnarhurðir settar.--
- Þak og rennur endurnýjað árið 2008.
- Vesturgafl klæddur 2024 (yfirstandandi viðgerðir en búið að greiða) Austurgafl hússins hefur líka verið klæddur.
Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í
lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.